Óttumst ekki samtal

Jónas

Um þessar mundir standa yfir viðamestu þéttingarframkvæmdir Íslandssögunnar í miðbæ Kópavogs.

Jónas Már Torfason Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi

Skipulagið hefur frá upphafi verið umdeilt en það er óumdeilt að í áformunum felst gríðarleg röskun fyrir íbúa á svæðinu. Skipulagsstofnun hefur lýst framkvæmdunum sem fordæmalausum. Ljóst er að framkvæmdatímabilið er rétt að byrja og eru gríðarlega íþyngjandi verkþættir, svo sem fleygun klappar og sprengingar, enn eftir.

Framkvæmdirnar hafa farið illa af stað. Upplýsingar um framkvæmdina hafa verið af skornum skammti og margt gerst á framkvæmdasvæðinu án þess að íbúum hafi verið gert viðvart. Þá hefur upplýsingagjöfin verið einhliða og tækifæri íbúa og fyrirtækjaeigenda á svæðinu til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri verið lítil sem engin. Rask og ónæði sem íbúar og fyrirtækjaeigendur í Fannborg og Hamraborg hafa valdið hefur farið umfram þau mörk sem eðlilegt getur talist. Rúðubrot og aðrar skemmdir á fasteignum hafa ítrekað átt sér stað, hávaði er töluverður og tímaáætlanir sem kynntar hafa verið fyrir íbúum standast ekki. Þá hafa veitt vilyrði um frið frá framkvæmdunum um helgar ekki staðist og vinna byrjar fyrr á morgnana og hættir síðar en upplýst var um að yrði raunin.

Dæmi eru um að íbúar hafi flúið heimili sín vegna ónæðis. Krossviðarplötum hefur verið komið fyrir við íbúðir á svæðinu þannig að ekkert sólarljós fær notið sín. Ekkert var upplýst um þessar aðgerðir á fundum sem hafa verið haldnir. Þá eru áhyggjur af brunavörnum, bæði hvað varðar aðkomu viðbragðsaðila sem og undankomuleiðir. Til dæmis hefur inngangurinn að bílastæðapallinum, sem nú hefur verið rifinn, verið aðalinngangur íbúa að Gjábakka. Íbúar í blokkinni, þar sem meðalaldur er 88 ár, upplifa óöryggi hvað varðar möguleika sína til að komast undan í neyð. Hér er ekki um tæmandi talningu að ræða. Íbúar lifa í óvissu um framkvæmdirnar því þær slitróttu upplýsingar sem þó eru veittar hafa ekki staðist. Framkvæmdir við Traðarreit vestur eru hafnar en enginn fundur hefur verið haldinn með framkvæmdaaðilanum. Íbúar við Hamraborg 28-36 upplifa sig í mikilli óvissu hvernig framkvæmdum verður háttað þar á næstu árum.

Undirritaður lagði því fram tillögu í bæjarráði í lok sumars um að stofnaður yrði samráðshópur íbúa og fyrirtækja á svæðinu, framkvæmdaaðila og bæjarins. Slíkir samtalsvettvangar eru alkunnir erlendis þegar um viðamiklar framkvæmdir er að ræða. Tilgangur hans er að miðla upplýsingum milliliðalaust á milli haghafa á svæðinu og halda formlega utan um þau samtöl sem eiga sér stað.
Meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarfólks felldi tillöguna á síðasta bæjarráðsfundi, þann 17. september, á grundvelli umsagnar bæjarstjóra og oddvita Sjálfstæðisflokksins. Inntak umsagnarinnar er að ekki sé þörf á sérstökum úrbótum, að „[tillögum] um frekara samráð hefur ítrekað verið svarað […] á þá leið að öflug upplýsingagjöf til íbúa sé vænlegri kostur en samráðsvettvangur […] byggt á þeim rökum að samráð geti leitt til þess að íbúar líti á slíkan vettvang sem sýndarsamráð ef ábendingar eða tillögur þeirra eru ekki teknar til greina […]. “ Í þessum efnum er rétt að nefna að fulltrúar Samfylkingar í skipulags- og umhverfisráði þann 2. júlí sl. þar sem meðal annars var óskað eftir upplýsingum um samskipta- og upplýsingaáætlun vegna framkvæmdanna. Svar barst tæplega fjórum mánuðum seinna, þann 21. september, á þá leið að engin áætlun lægi fyrir og ekki væri fyrirhugað að gefa út slíka áætlun; raunar væri það framkvæmdaaðila að sinna upplýsingagjöf.

Í samtölum undirritaðs við íbúa á svæðinu er fyrst og fremst krafist upplýsinga og samtals. Þeir upplifa ekki að þeir geti treyst bænum sínum. Afstaða Samfylkingar er skýr. Bærinn á ekki að hlaupa í felur frá bæjarbúum þegar erfið mál koma upp, sérstaklega ekki frá þeim sem bærinn biður um að færa fórnir í þágu framkvæmdanna.