Ræða Kristrúnar: „Styrk hönd á stýri“

Ræða Kristrúnar Frostadóttur formanns Samfylkingar á flokksstjórnarfundi í Samkomuhúsinu í Sandgerði 10. október 2026.

I.
Flokksstjórn, jafnaðarmenn, góðir gestir.

Það er gott að koma saman hérna í Samkomuhúsinu í Sandgerði á þessum tímapunkti. Eftir tíðindaríka viku í pólitíkinni – bæði á landsvísu og ekki síður hér í Suðurnesjabæ. Þar sem Samfylking vann stórsigur í kosningum í vor og axlaði ábyrgð sína, og vinnur nú að því að ná saman um nýjan meirihluta.

Og án þess að fara nánar í saumana á því þá hvetjum við ykkur til góðra verka. Til að leiða Suðurnesjabæ áfram. Með styrka hönd á stýri – fyrir fólkið í bænum.

* * *

Því að það er verkefni okkar jafnaðarfólks og hefur verið í 110 ár, frá stofnun Alþýðuflokks og Alþýðusambands – hvort sem er við stjórn landsmála eða í sveitarstjórnum, í stéttarfélögum eða í stjórnmálum: Að vinna í þágu þjóðar. Og stjórna fyrir fólkið. Með styrka hönd á stýri.

* * *

Þannig rísum við undir ábyrgð okkar. Til að skapa samfélag frelsis, jafnréttis og samstöðu fyrir alla Íslendinga – og öryggi í daglegu lífi.

Þetta eru háleitar hugsjónir. Þær útheimta „sleitulaust strit“. En hreyfingin okkar hefur sýnt í verki í meira en 100 ár að saman gerum við hugsjón að veruleika. Hér á Íslandi og þvert á landamæri.

Og þess vegna höldum við áfram að vinna og berjast á hverjum einasta degi, saman, til sigurs.

II.
Já, flokkstjórn. Áður en lengra er haldið vil ég ávarpa þau ykkar sérstaklega – sem landsmenn og flokksmenn hafa falið verðugt verkefni og aukna ábyrgð á árinu – með því að kjósa ykkur til forystu í sínu nærsamfélagi í sveitarstjórnarkosningum í vor.

Samfylkingin fékk næstflest atkvæði á landsvísu í þessum kosningum. Við fjölguðum fulltrúum okkar í sveitarstjórnum um helming. Og þið eruð núna 38 talsins – sem er næstmesti fjöldi fulltrúa af S-listum frá stofnun flokksins.

Þetta er ný kynslóð jafnaðarfólks. Sem mun láta til sín taka á næstu árum og áratugum – í þjónustu þjóðar. Og ég hlakka til að heyra meira hér á eftir um hvernig gengur í nýjum meirihlutum vítt um land.

* * *

Kjörnir fulltrúar jafnaðarfólks: Munum alltaf ábyrgð okkar. Tökum aldrei einu einasta atkvæði sem gefnu. Við höfum sameiginlegt verkefni – því að saman þjónum við köllun og hugsjón sem er okkur öllum æðri.

Til hamingju. Takk fyrir að bjóða ykkur fram – gangi ykkur sem allra best. Og gefum þeim gott klapp.

III.
Á vettvangi landsmála höfum við staðið í stafni og tekið ábyrgð á Íslandi. Á ólgutímum í alþjóðamálum og í öldugangi í efnahagslífi þjóðar – þá er það Samfylking sem passar upp á Ísland – ásamt staðföstum samstarfsflokkum okkar í ríkisstjórn.

Þessu getur fólkið í landinu treyst: Styrk hönd á stýri. Jafnaðarstefna með stjórnfestu. Ísland í öruggum höndum.

En hvernig höfum við siglt þennan vind sem blásið hefur? Lítum yfir það helsta:

(i)
Við tryggðum friðinn á vinnumarkaði. Samningar halda með samstilltu átaki. Þrátt fyrir olíuverðshækkanir að utan. Og standi allir við sitt er ljóst í mínum huga að þetta verður vendipunktur í baráttunni við verðbólguna.

(ii)
Við hvikum hvergi frá hallalausum fjárlögum. Þannig hættum við að reka ríkið á yfirdrætti. Þrátt fyrir viðstöðulausan þrýsting frá minnihlutanum á Alþingi um afturhvarf til óstjórnar í efnahagsmálum – með kröfum um allt í senn: að auka útgjöld, lækka skatta og hverfa frá erfiðum ákvörðunum um hagræðingu.

En við bognum ekki – heldur gerum það sem við sögðumst ætla að gera: Við lögum ríkisfjármálin.

(iii)
Við vinnum þétt með öllum bandalagsríkjum okkar og vinaþjóðum. Til að tryggja hagsmuni Íslands á róstusömum tímum. Þó að við virðum niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um að hefja ekki aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið – þá lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu eða gröfum undan samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.

Það kemur ekki til greina. Enda var ekki kosið um neitt slíkt. Þvert á móti er það stefna Samfylkingar og ríkisstjórnar að við stöndum okkur nú í stykkinu og styrkjum EES-samninginn enn frekar í sessi.

Og við treystum sambandið við Bandaríkin og Kanada. Á síðustu vikum hef ég átt jákvæð samtöl og fundi með fulltrúum bandarískra stjórnvalda, forseta Bandaríkjanna og utanríkisráðherra.

En síðast en ekki síst eflum við samstarfið við okkar nánustu nágranna hér í útnorðri: Færeyinga og Grænlendinga. Og þess vegna var gleðilegt í vikunni að efna til fyrsta leiðtogafundar Útnorðurlanda hér á Íslandi með formanni grænlensku landsstjórnarinnar og lögmanni Færeyja.

Allt er þetta alþjóðasamstarf í okkar heimshluta sem skiptir Ísland og Samfylkingu miklu máli.

(iv)
En stóru verkefnin sem eiga hug okkar allan flesta daga eru, eftir sem áður, hér heima.

Við sögðumst ætla að laga Ísland. Við erum að laga Ísland.

Og ef einhver heldur því fram að baráttan skili okkur engu; að stjórnmál skipti ekki máli – að allir flokkar séu eins – þá bendum við á verkin eftir minna en tvö ár með Samfylkingu í ríkisstjórn:

Lífeyrir fylgir launum, þjóðarátak í umönnun, stórfjölgun hjúkrunarrýma og besta staða Landspítala á þessari öld. Samgönguáætlun kláruð, stóraukið viðhald vega, stofnun innviðafélags og fyrstu undirbúningsframkvæmdir við jarðgöng í áratug.

Samningurinn um réttindi fatlaðs fólks, leiðrétting veiðigjalda, fyrsta atvinnustefna Íslands, orkuöflun, einföldun regluverks, fækkun ríkisstofnana og mesta fjárfesting atvinnulífs á Ísland í 50 ár – að frátöldum árunum fyrir hrun.

Stækkun verknámsskóla, stjórn á útlendingamálum, fjölgun lögreglumanna, betra námslánakerfi og ekkert barn á bið eftir meðferðarheimilum stjórnvalda. Lægri raforkureikningur í dreifbýli. Hlutdeildarlán sem virka, tekið á Airbnb, skrúfað fyrir skattahvata til að safna íbúðum, verðhækkanir á húsnæðismarkaði stöðvaðar og hæsta hlutfall fyrstu kaupenda frá árinu 2008.

Þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Allt þetta höfum við gert. Loforð gefin – loforð efnd.

* * *

Og nú göngum við í verkin sem tryggðu friðinn á vinnumarkaði: Févíti fyrir launaþjófnað, þróun barnabóta í fastar skorður, leigubremsa, fleiri almennar íbúðir og frumvarp til að minnka vægi verðtryggingar.

Þetta er önnur nálgun en tíðkast hefur í tengslum við kjarasamninga: Afmarkaðar aðgerðir. Í fullu samræmi við efnahagsleg markmið, stefnuyfirlýsingu og þingmálaskrá ríkisstjórnar. Og án þess að ógna hallalausum fjárlögum

* * *

Já, kæru félagar. Allt eru þetta breytingar sem munu bæta daglegt líf venjulegs vinnandi fólks – um land allt – á hverjum einasta degi: Klassísk jafnaðarstefna sem setur markið hærra. Fyrir fólkið í landinu sem við elskum. Fyrir Ísland allt.

IV.
Flokksstjórn Samfylkingar – við erum rétt að byrja.

Kjörtímabilið er hálfnað. Við erum komin í gang. En við erum fullmeðvituð um það að framundan eru ærin verkefni og við sögðum alltaf að það tæki meira en eitt kjörtímabil að koma Íslandi aftur á rétta braut – eftir 11 löng ár án jafnaðarmanna við stjórn landsmála.

Þess vegna skulum við nota þennan flokksstjórnarfund vel til að stilla miðið, þétta raðirnar og halda síðan sameinuð út aftur til verka.

* * *

Ég er ekki komin hingað til að segja ykkur að allt sé fullkomið eða að allt þetta sem gengur svo vel á Íslandi sé ríkisstjórninni að þakka. Alls ekki – enda vinnst ekkert í stjórnmálum með stórum orðum heldur aðeins með stórum verkum. Ég er líka fyllilega meðvituð um framlag forvera okkar úr ýmsum flokkum. Og við vitum að við getum alltaf gert betur.

Þess vegna skulum við vera óhrædd við að gagnrýna og taka opna umræðu í eigin röðum. Spyrjum spurninga. Leitum svara. Tökumst á og miðlum málum.

En gerum það með þeim hætti að við sameinumst í lok dags um stóru myndina. Til að styrkja Ísland.

V.
Kæru félagar – ég hef á tilfinningunni að þetta verði góður flokksstjórnarfundur.

Margt er að ræða, mörgu má fagna og það er mikið sem brennur á hjörtum okkar.

Dagurinn byrjaði vel hjá mér á góðum fundi í Reykjanesbæ með verkalýðsmálaráði Samfylkingar og fráfarandi forseta Alþýðusambands Íslands.

Ég vil nýta tækifærið til að þakka Finnbirni Hermannssyni kærlega fyrir gott samstarf – ekki síst á síðustu misserum í þríhliða samtali ríkisstjórnar, ASÍ og Samtaka atvinnulífsins – en einnig á síðustu árum á reglulegum fundum okkar frá því að ég tók við embætti forsætisráðherra og sem formaður í Samfylkingu. Finnbjörn er góður félagi og hefur áratuga reynslu af störfum í verkalýðshreyfingunni, sem formaður Byggiðnar og þar áður Trésmíðafélags Reykjavíkur. Og það er sérlega ánægjulegt að hans langa og góða ferli á þessum vettvangi skyldi ljúka með eins farsælum hætti og raun bar vitni í liðinni viku.

Hér á eftir gefst færi á að eiga beint samtal við kjörna fulltrúa Samfylkingar og þá verður nægur tími fyrir almennar umræður – þar sem flokksfélagar eru hvattir til að kveðja sér hljóðs. Við ætlum fara yfir málefnastarfið fram að landsfundi næsta vor. Og svo förum við í borðavinnu um strategíu og ræðum hvort þörf er á að uppfæra eða endurskoða þá strategíu sem forysta Samfylkingar hefur fylgt frá árinu 2022 – og þá hvernig?

Það er ekki seinna vænna að hefjast handa. Því eins og fróður maður sagði: Kosningar vinnast ekki á vikum – heldur árum.

Í kvöld ætlum við síðan að gleðjast að hætti heimamanna og syngja saman. Og það verður stór stund því að loksins eru Söngvar jafnaðarmanna að verða tilbúnir til útgáfu í söngbók – sem verður dreift í rafrænum drögum hér á eftir – en þetta er söngbók sem á í raun rætur að rekja til fyrstu útgáfu árið 1923 á Söngvum jafnaðarmanna. Þetta er eitt fárra verkefna okkar sem hefur hreyfst heldur hægt á síðustu árum – en nú er harðsnúinn hópur loksins að loka þessu þjóðþrifaverki. Sem við ætlum að prufukeyra saman í kvöld áður en prentvélarnar verða ræstar.

* * *

En síðast en ekki síst, kæru vinir, er komið að því við jafnaðarfólk kjósum okkur nýjan varaformann.

Og þá er rétt að við stöldrum við og heiðrum okkar góða fráfarandi varaformann – Guðmund Árna Stefánsson.

Sem hóf sinn feril sem leiðtogi í stjórnmálum með stórsigri í Hafnarfirði árið 1986. Með því að fella meirihluta íhaldsins og hífa fylgi Alþýðuflokksins upp – fyrst úr 20% í 35% og svo upp í 48% eftir fyrra kjörtímabilið sem bæjarstjóri.

Guðmundur Árni var heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og síðan félagsmálaráðherra í fyrsta ráðuneyti Davíðs Oddssonar, sat á þingi fyrir okkur jafnaðarmenn í 12 ár, starfaði í utanríkisþjónustu í 16 ár og sneri svo aftur til að sýna okkur sósíaldemókrötum hvernig á að gera alvöru endurkomu – í kosningunum í Hafnarfirði og svo sem varaformaður frá árinu 2022.

Guðmundur Árni – þú hefur verið sem klettur við hlið mér í forystu Samfylkingar á mögnuðum tíma í sögu flokksins. Það munaði oft um manninn með reynsluna. Og á ögurstundu höfum við alltaf getað treyst á þig – takk félagi frá dýpstu hjartarótum. Nú stöndum við upp og klöppum þér lof í lófa. Takk!

* * *

Að því sögðu er ég fullviss um að Guðmundur Árni verður áfram á vettvangi – til halds og trausts. Og það er ljóst að það kemur valinn maður í manns stað. Því að við eigum þess kost að kjósa einstaklega öflugan nýjan varaformann sem fær sviðið hér á eftir.

Gerum þetta að góðum degi og góðu kvöldi fyrir Samfylkinguna.

VI.
Flokkstjórn. Það sem ég er stoltust af við Samfylkinguna í dag er hvað við erum vel samstillt og sameinuð um að taka ábyrgð á flokknum okkar og taka ábyrgð á Íslandi.

Við gleðjumst þegar gengur vel – en við lítum jafnharðan fram á veg og hugum að ábyrgð okkar.

Við höldum áfram – með 110 ára sögu: Ný kynslóð jafnaðarfólks. Þétt með þjóðinni. Styrk hönd á stýri.

En samt er tilfinningin svo skýr í Samfylkingunni að við séum rétt að byrja núna að leiða breytingar. Og að saman höfum verk að vinna og einhverja æðri köllun – til að þjóna Íslandi og vinnandi fólki hér í þessu landi, frá einni kynslóð til annarrar, um ókomna tíð.

* * *

Hvert og eitt okkar leggur sitt af mörkum. Við getum alltaf hert okkur og gert enn betur. En ef einhver segir að barátta okkar sé einskis virði – þá dugar að benda á verkin og þann árangur sem náðst hefur með tryggð Samfylkingar við land og þjóð og hugsjón klassískrar jafnaðarstefnu.

Takk. Takk fyrir samstöðuna. Og takk fyrir ykkar framlag í sókn okkar – til nýrra sigra.