Stjórnmálaályktun flokksstjórnar

Flokksstjórn Samfylkingarinnar samþykkti neðangreinda ályktun á fundi sínum í Suðurnesjabæ, 10. október 2026.

Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar fagnar þeim árangri sem náðst hefur við stjórn landsins undir forystu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar og leggur áherslu á að haldið verði áfram af festu við að bæta hag fólks um land allt.

Ríkisstjórn Samfylkingarinnar fékk umboð til að ráðast í breytingar eftir langvarandi kyrrstöðu. Við tökum þá ábyrgð alvarlega. Verkefnið er að lækka framfærslukostnað heimilanna, endurreisa innviði, stuðla að stöðugleika í ríkisfjármálum, auka vöxt með sjálfbærum hætti og tryggja að velferðin standi undir þeim kröfum sem fólk gerir til hennar. Þannig byggjum við samfélag þar sem öll geta átt örugga framtíð.

Styrk hönd á stýri

Íslensk heimili og fyrirtæki þurfa festu í efnahagsmálum. Verðbólga og vextir eru enn of há og þrengja að daglegu lífi fólks.

Flokksstjórnarfundurinn brýnir fyrir ríkisstjórninni að halda ótrauð áfram vinnu að ná niður kostnaði en tryggja um leið grunnþjónustu og skapa þannig skilyrði fyrir næsta vaxtaskeið á Íslandi. Þar skiptir ábyrg fjármálastjórn sköpum.

Ríkisstjórnin hefur lagt fram fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 sem gerir ráð fyrir hallalausum rekstri ríkissjóðs á næsta ári. Aðhaldið byggir á skýrri forgangsröðun, hagræðingu og sanngjarnari tekjuöflun samhliða áframhaldandi auknum stuðningi við grunnþjónustu.

Samfylkingin stendur ávallt vörð um grunngildi jafnaðarstefnunnar, að þau sem hafa mest svigrúm leggi meira af mörkum til samfélagsins og glufum í skattkerfinu verði lokað með sanngirni og jöfnun að leiðarljósi.

Sterkur ríkissjóður gerir okkur kleift að reka betri velferðarþjónustu og bregðast við þegar áföll verða. Við ætlum að nýta opinbera fjármuni betur og tryggja að þeir skili sér til fólksins sem þjónustan er ætluð.

Við tryggðum friðinn

Flokksstjórnarfundurinn fagnar sameiginlegri niðurstöðu stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins sem tryggður að kjarasamningarnir halda. Með samkomulaginu hefur verið lagður grunnur að þjóðarsátt um að draga úr verðbólgu og verja kaupmátt. Ríkisstjórn undir forystu Samfylkingarinnar var leiðandi í að ná þessari niðurstöðu með virku samtali og skýrum skilaboðum um hver aðild hins opinbera að lausn gæti orðið.

Ríkið hefur heitið að takmarka hækkanir krónutölugjalda og gjaldskráa ríkisstofnana sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs við 2,5 prósent á næsta ári. Jafnframt hefur ríkisstjórnin, undir forystu Samfylkingarinnar, boðað afgerandi aðgerðir til að fjölga hagkvæmum leiguíbúðum, auka fyrirsjáanleika húsaleigu, halda aftur af hækkun húsaleigu og styrkja þannig réttindi launafólks. Allt er þetta gert án þess að markmiðinu um hallalaus fjárlög sé ógnað.

Þessi niðurstaða sýnir hvað hægt er að gera þegar ólíkir aðilar vinna saman að hag almennings. Flokksstjórnarfundurinn þakkar aðilum vinnumarkaðarins fyrir þeirra framlag og brýnir fyrir ríkisstjórninni að fylgja samkomulaginu eftir af festu. Ávinningurinn verður að skila sér í heimilisbókhaldið. Þar bera fyrirtæki líka ábyrgð með því að halda álagningu og verðlagningu hóflegri og sveitarfélögin í landinu sömuleiðis. Enn fremur þarf að efla samkeppni og neytendavernd svo almenningur njóti þess þegar kostnaður lækkar.

Höldum áfram að laga Ísland

Samfylkingin fór í ríkisstjórn til að laga kerfi sem höfðu brugðist fólki. Sá mikli árangur sem þegar hefur náðst á fyrri hluta yfirstandandi kjörtímabils er hvatning til áframhaldandi góðra verka.

Við ætlum að mæta uppsafnaðri þörf fyrir þjónustu og framkvæmdir af þeirri alvöru sem verkefnið krefst.

Við erum að lyfta grettistaki í orkumálum og styrkt orkuöryggi um land allt. Við ráðumst í átak í endurheimt votlendis og vistkerfa í þágu náttúruverndar, líffræðilegrar fjölbreytni og viðnámsþrótt samfélaga vegna loftslagsbreytinga.

Þjóðarátak í umönnun eldra fólks hefur rofið kyrrstöðu í uppbyggingu hjúkrunarheimila. Unnið er að því að fleiri fái fastan heimilislækni og að heilbrigðisþjónustan geti betur sinnt fólki um allt land. Áfram skal höggvið á hnúta við uppbyggingu samfélagslega mikilvægra innviða og fyrirsjáanleiki í framkvæmdum tryggður.

Flokksstjórnarfundurinn leggur áherslu á að halda áfram að stytta bið eftir þjónustu og tryggja fólki með skerta starfsgetu og eldra fólki afkomuöryggi. Mannvirðing á öllum æviskeiðum er grundvallaratriði í jafnaðarstefnunni.

Húsnæðisöryggi er forsenda þess að fólk geti skipulagt líf sitt. Áfram þarf að fjölga íbúðum, styðja fyrstu kaupendur og tryggja leigjendum raunhæfa möguleika á öruggu heimili með viðráðanlegum kostnaði.

Fundurinn styður boðaðar breytingar sem takmarka reglubundnar hækkanir húsaleigu við eitt skipti á ári og kallar eftir því að uppbyggingu almenna íbúðakerfisins verði hraðað.

Uppbygging samgangna og orkuinnviða þarf að bæta lífsgæði og atvinnumöguleika í öllum landshlutum. Ný samgönguáætlun og stofnun innviðafélags sem hlotið hefur nafnið Göng

og brú ohf. skapa tækifæri til að koma þjóðarhagslega mikilvægum verkefnum hraðar í framkvæmd.

Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar fagnar þeim skrefum sem stigin hafa verið til að bæta kjör námsmanna og efla háskólakerfið. Fundurinn lýsir yfir stuðningi við heildstæða háskólastefnu sem byggir á skýrari forgangsröðun, auknum gæðum náms og rannsókna og betri nýtingu fjármuna. Halda þarf áfram uppbyggingu öflugrar háskólasamstæðu og efla samstarf háskóla og atvinnulífs.

Menning á að vera aðgengileg öllum landsmönnum óháð búsetu og efnahag. Fundurinn leggur áherslu á að efla menningarinnviði um allt land með öflugri menningarsamningum sem byggja á sérstöðu hvers landshluta. Jafnframt þarf að efla samstarf menningarstofnana, nýta opinbert fjármagn betur og skapa ný tækifæri fyrir skapandi greinar með sterkari tengingum við atvinnulíf og nýsköpun.

Á tímum örra tæknibreytinga og vaxandi samkeppni við erlenda tæknirisa er mikilvægt að standa vörð um öflugt og sjálfstætt RÚV sem sinnir mikilvægu hlutverki í almannaþágu. Jafnframt þarf að styrkja rekstrargrundvöll frjálsra og óháðra fjölmiðla og tryggja fjölbreytta íslenska fjölmiðlun til framtíðar, enda eru öflugir fjölmiðlar ein af grunnstoðum lýðræðisins.

Flokksstjórnarfundurinn leggur áherslu á að verðmætasköpun byggi á sjálfbærri og skynsamlegri nýtingu auðlinda og að þjóðin fái sanngjarnan hlut af nýtingu auðlinda í sameiginlegri eigu þjóðar sem verða til. Framfarir eiga að styrkja velferð og auka jöfnuð.

Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar fagnar því að ríkisstjórnin hefur tekið utanríkisstefnu Íslands föstum tökum og eflt samtal og samstarf við helstu vinaþjóðir okkar. Þéttari samvinna við nágranna okkar á Norðurlöndum, á Grænlandi og í Færeyjum, sem og mikilvægustu samherja okkar í Evrópu og Bandaríkjunum, styrkir stöðu Íslands og getu okkar til að gæta hagsmuna þjóðarinnar. Fundurinn leggur áherslu á að þessari vinnu verði haldið áfram af festu og ábyrgð. Ísland er traustur samstarfsaðili sem stendur vörð um frið, mannréttindi og alþjóðalög og tekur virkan þátt í að leysa sameiginleg viðfangsefni með vinaþjóðum sínum.

Setjum börn og ungmenni í forgang

Flokksstjórnarfundurinn brýnir fyrir ríkisstjórninni að setja málefni barna og ungmenna í forgang á komandi vetri. Árangur hefur náðst í málaflokknum en enn bíða of mörg börn eftir þjónustu og fjölskyldur þurfa að berjast fyrir aðstoð sem á að vera sjálfsögð. Því verður að breyta. Við höfum skyldu til að tryggja að börn fái stuðning þegar þau þurfa á honum að halda.

Því er fagnað að bið barna og ungmenna eftir þjónustu á meðferðarheimili á vegum stjórnvalda hefur verið eytt. Með samkomulagi ríkis og sveitarfélaga hefur einnig verið bætt þremur milljörðum króna á ári í þjónustu á þriðja stigi. Nú þarf að tryggja að sú

fjármögnun leiði til betri þjónustu og að sveitarfélög geti sinnt snemmtækum stuðningi og frístundastarfi. Skýr ábyrgð og samfella í þjónustu eiga að koma í veg fyrir að börn falli milli kerfa.

Fundurinn kallar eftir markvissum aðgerðum til að stytta bið eftir greiningu, meðferð og annarri nauðsynlegri þjónustu. Börn sem greinast með þörf fyrir stuðning við skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum eiga að fá viðeigandi aðstoð án tafar. Þau þurfa virka þjónustu sem veitir þeim vernd. Fyrsta ungmennastefna Íslands, aðgerðir gegn fátækt barna og aðgerðaáætlun menntastefnu til ársins 2030 eru grunnur að þessari vinnu. Aðstæður foreldra mega ekki ráða möguleikum barna til náms eða þátttöku í íþróttum og frístundum og ungt fólk þarf að eiga rödd í ákvörðunum sem varða líf þess.

Lög um símafrí í skólum og boðað frumvarp um 15 ára aldurstakmark á samfélagsmiðlum eru rétt skref í þágu barna. Flokksstjórnarfundurinn styður jafnframt að þau sem sætti óforsvaranlegri meðferð í æsku á opinberum stofnunum geti sótt sanngirnisbætur.

Samfylkingin ætlar að nýta veturinn til að fylgja þessum verkefnum og fleirum eftir af krafti. Við höfum tekið að okkur að laga Ísland og berum ábyrgð á að það finnist í lífi fólks. Börnin okkar eiga að finna það fyrst. Samfylkingin, jafnaðarflokkur Íslands, tekur ábyrgð sína alvarlega sem forystuafl í íslenskum stjórnmálum. Fulltrúar flokksins á Alþingi og í sveitarstjórnum ganga til starfa af áræðni og framsýni og láta verkin tala – hér eftir sem hingað til.

Flokksstjórn Samfylkingarinnar, Suðurnesjabæ 10. október 2026