Fjárfestum í samfélagi

Áherslur Samfylkingar í Kópavogi við fjárhagsáætlunargerð

Á þriðjudaginn fóru fram fyrri umræður um fjárhagsáætlun Kópavogs í bæjarstjórn. Samfylkingin í Kópavogi lagði fram breytingartillögur við tillögu meirihlutans sem eru í samræmi við áherslur flokksins og jafnaðarstefnunnar. Tillögurnar eru að fullu fjármagnaðar með hagræðingu í rekstri. Þær krefjast því ekki aukinnar skattheimtu eða frekari lántöku.

Fjármagnið er að hluta til fundið með því að takmarka yfirvinnu í miðlægri stjórnsýslu bæjarins. Þrátt fyrir að þar sé unnið gott starf á það að rúmast innan hefðbundins vinnutíma og er hlutfall yfirvinnu á móti öðrum launum hátt eða um 42%. Gætt hefur verið hófsemi í þessari aðhaldskröfu og er hún lægri fyrir svið þar sem búast má við tímabundnu verkefnaálagi sem ekki þolir bið. Hins vegar er fjármagnið fundið með því að lækka fjárveitingu til kaupa á spjaldtölvum í grunnskólum bæjarins. Kópavogur ver um 80 milljónum á ári í einungis í að endurnýja spjaldtölvur og þykir það ekki forsvaranlegt þegar skýr merki eru um að skjánotkun sé beinlínis vandamál innan skólanna og hafi neikvæð áhrif á námsárangur barna. Í stað þess að öll börn, frá 1. til 10. bekkjar, fái eigin spjaldtölvu frá bænum verður lagt upp með að 1. til 4. bekkur verði alfarið snjalltækjalaus og að börn í 5. til 10. bekk geti samnýtt búnaðinn í stað þess að hvert barn fái eigin spjaldtölvu. Til langs tíma þarf að meta hvort tilefni sé til að ganga enn lengra.

Og hvað vill Samfylkingin gera við fjármagnið sem sparast af þessum aðgerðum? Til dæmis að hækka systkinaafslátt í leikskólum bæjarins úr 50% í 75% fyrir annað barn, til að létta undir með barnafjölskyldum sem borga hæstu leikskólagjöld á landinu. Eða að hafa sumarfrístund á vegum bæjarins opna í fimm grunnskólum bæjarins í stað eins, til að auðvelda fjölskyldum að láta sumarfrískapalinn ganga upp. Við viljum þess að auki nýta hluta þess fjár sem sparast við afturhvarf frá spjaldtölvuvæðingu grunnskólanna og efla skólabókasöfn bæjarins til muna með aukinni fjárveitingu til bókakaupa.

Við viljum lengja opnunartíma í báðum sundlaugum bæjarins en ekki bara í Salalaug, líkt og meirihlutinn hefur lagt til. Kópavogslaug er ein af vinsælustu sundlaugum höfuðborgarsvæðisins og okkur þykir mikilvægt að sú bætta lýðheilsa sem aukinn opnunartími ber með sér nái einnig til þeirra sem sækja Kópavogslaug. Við leggjum jafnframt til að auka við framlög til lista- og menningarsjóðs Kópavogs til að efla deiglu sjálfstæðs lista- og menningarlífs í Kópavogi. Við viljum ráðstafa peningum í átak til að rjúfa félagslega einangrun eldri borgara til að tryggja að það gangi enginn einn í gegnum síðasta æviskeiðið. Við leggjum jafnframt til að verja meira fjármagni í að styðja við fötluð börn í bænum. Þess að auki viljum við rækta bæinn okkar og fara í átak í gróðursetningu trjáa, sem eflir skjólsæld, loftgæði og náttúrutengingu bæjarbúa.

Loks leggjum við til að verja fjármunum til að greiða niður skammtímaskuldir bæjarins en Kópavogsbær hefur treyst allt of mikið á yfirdráttarlán til þess að mæta kröfum til skemmri tíma. Að greiða niður þessar skuldir í auknum mæli styrkir fjárhagslegt heilbrigði bæjarins til lengri tíma og skapar rými inn í framtíðina til að styrkja þjónustu við bæjarbúa enn frekar.

Allt eru þetta aðgerðir sem voru á oddinum í kosningabaráttu Samfylkingarinnar síðastliðið vor. Raunhæfar áherslur um sveitarfélag sem er samfélag, þar sem þjónusta við bæjarbúa er í forgrunni. Góðar breytingar sem þoka okkur í rétta átt og setja stefnuna á þann stað sem við viljum vera á eftir nokkur ár. Tillögum okkar hefur nú verið vísað til bæjarráðs og munum við fylgja þeim eftir á þeim vettvangi. Við lögðum áherslu á góðar tillögur, þar sem bæjarbúar fá mikið fyrir peninginn og finna fyrir því að skattfénu þeirra er ráðstafað í þeirra þágu. Við bindum vonir við að tillögur okkar fái brautargengi, öllum bæjarbúum til hagsbóta.

Eydís Inga Valsdóttir og Jónas Már Torfason
Höfundar eru bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Kópavogi.