Frístundavagn á föstudögum

Mikilvægur hluti af æsku og uppvexti barna er ástund íþrótta og annarrar skipulagðrar tómstundastarfsemi.

Eydís Inga Valsdóttir Bæjarfulltrúi í Kópavogi

Starfið fyrir yngri börn fer jafnan fram á hefðbundnum vinnutíma foreldra og íþróttaaðstaðan er svo nýtt af eldri börnum og ungmennum þegar líður á daginn og á kvöldin, þeim sem hafa að jafnaði lengri skóladag. Til þess að þetta fyrirkomulag virki sem skyldi í sveitarfélagi sem er jafn stórt og langt og Kópavogur hafa stóru íþróttafélögin, Breiðablik, Gerpla og HK, staðið fyrir rekstri frístundavagns síðan árið 2018. Frístundavagninn sér um að skutla börnum úr skóla í sínar frístundir, þaðan sem foreldrar geta svo sótt þau að loknum vinnudegi.

Kópavogsbær hefur tekið þátt í kostnaði vegna frístundavagnsins, en frá árinu 2024 hafa foreldrar greitt sérstakt gjald fyrir þjónustuna sem áður var gjaldfrjáls. Gjaldið hefur síðan hækkað úr 11.200 kr. í 13.300 kr. á önn og enginn systkinaafsláttur er veittur. Vagninn ekur þó aðeins fjóra daga vikunnar. Börn sem æfa bæði á föstudögum og aðra daga greiða fullt gjald en geta ekki nýtt þjónustuna fyrir föstudagsæfingarnar. Samkvæmt upplýsingum frá bænum eru 236 börn á aldrinum 6–9 ára sem æfa á föstudögum, og hluti þessara barna vegna búsetu eiga óhjákvæmilega erfitt með að koma sér á æfingu. Í þessu felst ósamræmi, þar sem aðgengi barna að þjónustunni ræðst af því á hvaða vikudegi æfingarnar eru.

Ef ekkert verður að gert er hætta á að hópur barna flosni upp úr skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi vegna aðstöðumuns, enda eiga ekki allir foreldrar kost á að hætta fyrr í vinnu til að skutla á æfingu. Ef að kostnaðurinn við að bæta við akstri á föstudögum fyrir þann hóp barna sem á þarf að halda er of hár væri möguleiki á að koma til móts við þau með því að gefa afslátt af gjaldi vagnsins á kostnað bæjarins. Þetta vill Samfylkingin í Kópavogi skoða nánar.

Íþróttastarf í Kópavogi er í fremsta flokki og bæði íbúum og iðkendum íþróttafélaganna fjölgar stöðugt frá ári til árs. Ljóst er að skortur er á plássi til íþróttaiðkunar og þá sérstaklega fyrir innanhúsíþróttir og hefur HK óskað eftir meira plássi fyrir handbolta í neðri byggðum og Breiðablik jafnframt eftir plássi fyrir körfubolta í efri byggðum. Samfylkingin lagði til að skipaður yrði starfshópur kjörinna fulltrúa til að vinna fjárfestingar- og viðhaldsáætlun íþróttamannvirkja í samstarfi með starfsfólk bæjarins og íþróttafélögunum til að einmitt skapa umgjörð og sátt um hvernig fjármagni verði best varið næstu árin til að tryggja jafnt aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttu íþróttastarfi. Þeirri tillögu var vísað til umsagnar bæjarstjóra í júlí á þessu ári og er enn  beðið svara.

Ef það á áfram að vera markmið okkar að börn og ungmenni bæjarins taki þátt í framúrskarandi starfi íþróttafélaganna í bænum þarf áfram að greiða götur þeirra. Aukin þjónusta frístundavagnsins og meiri fyrirhyggja í uppbyggingu íþróttamannvirkja eru markviss og skynsamleg skref í þá veru.

Eydís Inga Valsdóttir
Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi