Mörður Árnason - minningarorð

Í dag fylgjum við okkar góða félaga, Merði Árnasyni, síðasta spölinn og söknum vinar í stað.

Það var vor í lofti þegar íslenskt jafnaðar- og félagshyggjufólk mætti til leiks í Borgarleikhúsið til þess að skrifa söguna. Nýr flokkur var í burðarliðnum þar sem kosningabandalag fjögurra stjórnmálaafla varð að stjórnmálaflokki. Draumurinn um Samfylkingu jafnaðarfólks var að rætast og byr í seglum.

Mörður er samofinn sögu Samfylkingarinnar frá stofnundinum til hinsta dags. Hann var ötull baráttumaður fyrir stofnun flokksins eftir að hafa starfað með forverum hans, Alþýðubandalaginu og Þjóðvaka, um árabil.

Mörður lagði ríka hönd á plóg í starfi Samfylkingarinnar og kom víðar við en nokkur leið er að gera tæmandi grein fyrir. Hann vann við ritstjórn og textagerð á fyrstu misserum flokksins, auk þess að gegna ýmsum trúnaðarhlutverkum fyrir Samfylkingarfélagið í Reykjavík sem hann var einn stofnenda af.

Hann vann náið með Össuri Skarphéðinssyni formanni flokksins á mótunarárum Samfylkingarinnar. Saman skrifuðu þeir fyrstu útgefnu stefnu flokksins sem gekk undir nafninu Gullni þríhyrningurinn. Þar voru listilega vel saman ofin meginstef íslenskra jafnaðarmanna; velferð, atvinna og menntun enda Mörður fádæma góður íslenskumaður.

Mörður tók 14 sinnum sæti á Alþingi sem varaþingmaður á tímabilinu 1995-2015 og átti fast sæti á Alþingi árin 2003-2007 og 2010-2013. Hann sat lengst af í menntamálanefnd Alþingis og var á tímaibili formaður umhverfisnendar þingsins en í þeim málaflokki lét hann mikið til sín taka.

Mörður lét sig umhverfismálin miklu varða og var einn höfunda stefnu Samfylkingarinnar í málaflokknum sem bar heitið Fagra Ísland. Markaði stefnan tímamót í umhverfismálum á Íslandi og setti nýjan tón í skautaða umræðu þess tíma.

Mörður var jafnaðarmaður í besta skilningi þess orðs. Tilfinningaríkur hugsjónamaður sem gat ekki séð neinn skilinn eftir í samfélaginu. Hann var einnig maður rökhyggju og skynsemi. Kunni að miðla málum og lenda flóknum átökum til þess að vinna hugðarefnum sínum framgang. Hann var óspar á tíma sinn þegar kom að starfi Samfylkingarinnar enda sat hann líkast til alla lands- og flokksstjórnarfundi frá stofnun og lagði ríka hönd á plóg.

Við leiðarlok er okkur jafnaðarfólki fyrst og fremst þakklæti í huga. Með söknuði og virðingu kveðjum við kæran félaga og þökkum fyrir vináttuna og ómetanlegt framlag hans til framgangs jafnaðarstefnunnar á Íslandi.

Við vottum Lindu eiginkonu hans og Ölrúnu dóttur og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Mörður markaði djúp spor í hreyfingu jafnaðarmanna sem við verðum honum ævinlega þakklát fyrir.