Fyrir fólkið í bænum
Kosningastefna Samfylkingarinnar í Reykjansebæ 2026 - 2030
1. Daglega lífið með Samfylkingunni
Við viljum einfalda daglega lífið fyrir íbúa Reykjanesbæjar, hvort sem fólk er að reka fyrirtæki, ala upp fjölskyldu eða njóta efri ára. Það gerum við með bættri þjónustu og auknum stuðningi. Þannig léttir Samfylkingin undir með þér í daglegu lífi, því við erum hér fyrir fólkið í bænum.
Léttum daglega lífið
Fyrir fyrirtækin
- Styttum og einföldum boðleiðir fyrir íbúa og fyrirtæki með einni viðkomu.
- Setjum fram skýra ferla þegar fyrirtæki sýna áhuga á að koma í sveitarfélagið.
Fyrir barnafjölskyldur
- Frítt í strætó fyrir börnin okkar.
- Hámark leikskólagjalda verði 50 þúsund krónur á mánuði fyrir hvert heimili, óháð barnafjölda.
- Fylgjum eftir lögfestingu réttar til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi.
Fyrir heldri borgara
- Hlúum að fólkinu sem byggði samfélagið með því að efla félagslega ráðgjöf til aldraðra og bætum stuðning í daglegu lífi.
- Fjölgum tómstundaúrræðum og viðburðum fyrir fólk 67 ára og eldri.
2. Aðeins það besta fyrir börnin okkar
Börnin okkar eiga skilið bestu mögulegu umgjörð til að vaxa og dafna. Við leggjum áherslu á öflugt skólastarf og fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf sem hvetur til hreyfingar, þátttöku og vellíðan barna og ungmenna. Þannig tryggjum við jöfn tækifæri fyrir öll börn í bænum.
Leikskólar og umönnun
- Tryggjum áfram inngöngu á leikskóla við 18 mánaða aldur og styrkjum dagforeldrakerfið.
- Bjóðum upp á heimgreiðslur til að auka valfrelsi foreldra.
- Byggjum nýjan Garðasel, ljúkum gerð Stapaleikskóla og stækkum aðra leikskóla.
Grunnskólar og farsæld
- Ljúkum uppbyggingu Myllubakka- og Holtaskóla og hefjum byggingu nýrra skóla á Ásbrú og í Hlíðarhverfi.
- Eflum velferð barna með markvissum stuðningi og úrræðum líkt og Hlýjunni.
Íþróttir og tómstundir
- Hækkum frístundastyrki fyrir börn í 70 þúsund krónur að lágmarki.
- Fjölgum tómstundamiðstöðvum í skólahverfum og eflum starfsemi 88 hússins.
- Stóreflum íþróttaaðstöðu í bænum, m.a. með uppbyggingu við Afreksbraut.
- Styrkjum rekstrargrundvöll íþróttafélaganna með fjölbreyttum leiðum.
Skipulag og lýðheilsa
- Styrkjum málaflokk íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsumála.
- Opnum íþróttahús bæjarins fyrir íbúa til að auka virkni og hreyfingu.
3. Atvinna og uppbygging
Við viljum öflugt og fjölbreytt atvinnulíf. Með markvissri uppbyggingu, sterkum innviðum og stuðningi við fyrirtæki sköpum við grundvöll fyrir fleiri störf og styrkjum þannig framtíð Reykjanesbæjar.
Uppbygging hafna og ferðaþjónustu
- Bjóðum Landhelgisgæsluna velkomna til Reykjanesbæjar með stækkun Njarðvíkurhafnar.
- Fjölgum komum skemmtiferðaskipa í Keflavíkurhöfn.
- Eflum Reykjanesbæ sem ferðaþjónustubæ með öflugri verslun og þjónustu ásamt því að nýta tækifærin sem felast í nálægð við flugvöll og auðlindir.
Atvinnulíf og tækifæri fyrir alla
- Fjölgum atvinnutækifærum með virkri atvinnustefnu og bjóðum út fleiri atvinnulóðir.
- Byggjum upp Helguvík sem grænan iðngarð.
- Tryggjum fólki með skerta starfsgetu að lágmarki 1% starfa hjá bænum.
- Hefjumst handa við að lækka lóðarleigu til að styrkja samkeppnisstöðu fyrirtækja.
4. Velferð fyrir okkur öll
Sterkt samfélag byggir á öflugri velferð og jöfnum tækifærum. Við viljum tryggja að allir fái þann stuðning sem þeir þurfa með góðu aðgengi að viðeigandi þjónustu. Saman erum við sterkari.
Stuðningur og tækifæri
- Opnum Velferðarhús Reykjanesbæjar sem hýsir lögbundna þjónustu fyrir börn með langvarandi stuðningsþarfir.
- Tryggjum ungmennum á fjárhagsaðstoð jöfn tækifæri til náms með fartölvustyrkjum.
- Styrkjum grunnþjónustu með fjölgun starfsfólks á velferðarsviði og bjóðum fólki á fjárhagsaðstoð upp á aukin virkniúrræði.
Búsetuöryggi fyrir íbúa
- Byggjum fleiri íbúðir fyrir fatlað fólk, öryrkja og aldraða í samvinnu við Brynju hússjóð og óhagnaðardrifin leigufélög.
- Byggjum námsmannaíbúðir fyrir skólafólk til að auðvelda því inngöngu á húsnæðismarkaðinn.
- Drögum úr útgjöldum heimilanna og hefjumst handa við að lækka lóðarleigu.
5. Grænni og betri Reykjanesbær
Við viljum þróa bæinn okkar áfram á sjálfbæran hátt til framtíðar með bættum samgöngum, uppbyggingu hverfanna ásamt því að skapa umhverfi sem hvetur til hreyfingar og útivistar. Með skýrri framtíðarsýn gerum við Reykjanesbæ að besta staðnum til að búa á.
Samgöngur og innviðir
- Bætum umferðarflæði og umferðaröryggi á Njarðarbraut með hringtorgum.
- Greiðum leið á milli bæjarhluta með ofanbyggðarvegi og þrýstum á tvöföldun Reykjanesbrautar til Leifsstöðvar.
- Tryggjum örugga þverun Reykjanesbrautar fyrir gangandi og hjólandi ásamt nauðsynlegum tengingum við Reykjanesbæ.
- Setjum umferðaröryggi barna í forgang með markvissum lausnum um allan bæ.
Uppbygging hverfa
- Bjóðum út lóðir í Keflavíkurborgum og á Akademíureitnum og höldum áfram uppbyggingu á Ásbrú.
- Þróum svæðið við Svarta pakkhúsið og Fischershús í samvinnu við uppbyggingaraðila.
Útivist, stígar og gróður
- Ljúkum uppbyggingu á göngu- og hjólastígum bæjarins, tengjum Hafnir við Ásbrú og gerum stíga til Voga og Sólbrekkuskógar við Seltjörn.
- Byggjum áfram upp útivistarperlurnar við Seltjörn og á Fitjum og fjölgum útivistarsvæðum.
- Eflum skógrækt með sameiginlegu átaki bæjarins, íbúa og fyrirtækja.
- Fjölgum leikvöllum í hverfunum til að hvetja til aukinnar útiveru.
6. Menning er stemning
Lífleg menning gerir góðan bæ enn betri. Við viljum styrkja menningarlega sjálfsmynd Reykjanesbæjar með fjölbreyttum viðburðum og stuðla að gróskumiklu menningarlífi í heimabyggð.
Líflegur heimabær og hátíðir
- Eflum bæjarhátíðirnar okkar og lengjum opnunartíma sundlauganna.
- Byggjum upp líflegan útimiðbæ við Duus-hús, eflum bæinn enn frekar í viðburðahaldi og komum á samtali milli veitingaaðila til að glæða bæinn lífi.
Aðstaða og sköpun
- Sköpum aðstöðu og tækifæri fyrir ungt fólk í menningu og tónlist.
- Sköpum fjölbreytt og lifandi félagslíf fyrir heldri borgara.
Arfleifð og sýningar
- Fjölgum sýningum um Suðurnesin til að styrkja menningarlega sjálfsmynd bæjarins.