Gerum góðan bæ betri

Kosningastefna S-listans í Hveragerði 2026 - 2030

1. Barna- og menntamál

  • Stefnumótunarvinna: Eitt af forgangsmálum S-listans í bæjarstjórn er að setja af stað stefnumótunarvinnu í málefnum barna og ungmenna með þátttöku margra.
  • Skólaakstur: S-listinn ætlar að láta gera þarfagreiningu á því hvort bjóða eigi upp á skólaakstur.
  • Foreldragreiðslur: S-listinn vill bjóða upp á foreldragreiðslur frá 12-24 mánaða aldurs til þeirra foreldra sem kjósa að vera heima með barni sínu. Með þessu er verið að styðja betur við foreldra og auka valfrelsi.
  • Leikvellir: Gera þarf átak í endurnýjun og viðhaldi leikvalla í Hveragerði og fjölga þeim.
  • Efla forvarnir: Forvarnir snúast um að koma í veg fyrir vandamál áður en þau verða stór, hvort sem um er að ræða hegðun og líðan nemenda, námsörðugleika eða álag á starfsfólki.
  • Snemmtækur stuðningur: Í anda laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna vísar snemmtækur stuðningur til þess að grípa börn og fjölskyldur þeirra snemma, áður en vandi verður alvarlegur.
  • Mannauður og starfsumhverfi: Árangursríkir starfshættir hjá starfsfólki leikskóla, grunnskóla og fleiri stofnana byggjast á aðlaðandi starfsumhverfi. S-listinn vill vinna markvisst að styrkingu starfsumhverfis í öllum stofnunum bæjarfélagsins.
  • Aukin þátttaka ríkisins í rekstri leikskóla: S-listinn fagnar vilja forsætisráðherra og þingmanna Samfylkingarinnar til að vinna að því að brúa bilið og gera rekstur leikskóla lögbundið verkefni. Samhliða því verði teknar upp viðræður um kostnaðarskiptingu og tekjustofna milli ríkis og sveitarfélaga. Í dag tekur ríkið ekki neinn þátt í rekstri leikskóla eins og það gerir í rekstri grunnskóla.

2.  Skipulagsmál

  • Uppbygging íbúðarhúsnæðis og innviða: S-listinn leggur áherslu á að framboð og eftirspurn íbúðarhúsnæðis og uppbygging innviða haldist alltaf í hendur og sé góðu í samræmi við fjölgun íbúa.
  • Lágreist byggð á bæjarflöt: S-listinn vill að íbúðabyggð á núverandi bæjarflöt, sem er elsti hluti Hveragerðis, verði lágreist og í takt við þá byggð sem fyrir er. Horfið verði frá öllum hugmyndum um háhýsi við aðkomu inn í bæinn.
  • Græn svæði: S-listinn vill að þétting byggðar verði varfærin og verði aldrei á kostnað sérkenna Hveragerðis sem er þekkt fyrir blómin og gróðurinn. Þá eru útivistarsvæði fjallanna stór hluti af lífsgæðum Hvergerðinga og því má alls ekki þrengja að þeim.
  • Næsta framtíðarbyggingasvæði Hveragerðisbæjar ætti að vera á Sólborgarsvæðinu sem er land í eigu bæjarins.
  • Færsla þjóðvegarins: S-listinn vill þrýsta á ríkisvaldið um að það standi við loforð um færslu Suðurlandsvegar til suðurs. S-listinn vill fá þjóðveginn enn sunnar, en núverandi aðalskipulag gerir ráð fyrir, svo vegurinn haldi ekki áfram að klippa í sundur Hveragerði. Það hefði jákvæð áhrif á skipulag bæjarins, landnýtingu, staðsetningu íbúða- og atvinnusvæða og hljóðvist.
  • Öruggir hjóla-, göngu og reiðstígar: Halda þarf notendahópum sem mest aðskildum, það á þó einkum við hjól og hesta. Sérstakt tilliti þarf að taka til barna og eldra fólks við hönnun stíga. Merkja vel og lýsa stíga sem þvera götur.. Öruggir göngu- og hjólastígar ættu að liggja í gegnum allan bæinn.
  • Torg í hjarta Hveragerðis: Torgið ætti að vera þar sem nú er Kvennaskólatorg. Þar er góð tenging við íþróttamannvirki, skólann oh lystigarðinn. Þróa mætti þannig að stundum sé það ætlað gangandi umferð, en við aðrar aðstæður fái bílaumferð og bílastæði meira vægi. Þar mætti skapa aðstöðu fyrir listamenn, handverksfólk og aðra menningarstarfsemi.

3. Menning og umhverfi

  • Fráveitumannvirki: S-listinn leggur áherslu á að fráveitumálin verði eitt af forgangsverkefnum bæjarins.
  • Fegrun svæðisins í kringum verslunarmiðstöðina: Í góðu samstarfi við rekstraraðila þarf að gera svæðið í kringum verslunarmiðstöðina snyrtilegra. Einnig þarf að tryggja umferðaröryggi og almennt aðgengi með þarfir barna og eldra fólks í huga.
  • Blómabeð og græn svæði: S-listinn vill fjölga blómabeðum í bænum og efla græn svæði.
  • Hamarinn: S-listinn vill þróa skógarsvæðið undir Hamrinum sem aðlaðandi útivistarsvæði í góðu samstarfi við Skógræktarfélag Hveragerðis. Ef vel tekst til gæti svæðið orðið náttúrulegt ævintýrasvæði.
  • Fossflötin: S-listinn leggur áherslu á að halda áfram að endurnýja og fegra garðinn. Setja upp fleiri bekki, leiktæki og salernisaðstöðu. Þá mætti setja upp matar- eða kaffivagn.
  • Listir eru lýðheilsumál: S-listinn leggur áherslu á að listir séu ekki einungis menningarmál heldur einnig lýðheilsumál. Þátttaka í skapandi starfi eykur vellíðan, styrkir tengsl og hefur bein áhrif á andlega heilsu.
  • Bókasafnið er í raun eina núverandi menningarhúsið sem rekið er af Hveragerðisbæ og því er mikilvægt að hlúa að því og efla á allan hátt. S-listinn vill gera bókasafnið gjaldfrjálst fyrir eldri borgara.
  • Samfélagsgróðurhús: S-listinn vill skoða hvort hægt sé að koma samfélagsgróðurhúsi á laggirnar með ræktunarrými fyrir íbúa, fjölskyldusamveru, fræðslu og miðstöð fyrir viðburði og listsköpun. Draumur til framtíðar er að byggja samfélagshús fyrir íbúa og félagasamtök.

4. Íþróttir

  • Íþróttamannvirki: S-listinn vill flýta uppbyggingu íþróttamannvirkja. Einnig þarf að sinna vel viðhaldi á öllum mannvirkjum, m.a. þarf að bæta aðgengi fyrir fatlað fólk við sundlaugina. 
  • Samstarf: S-listinn vill eiga gott samstarf við íþróttafélög um þróun íþróttamála í Hveragerði. 
  • Kynningarmál: Standa þarf vel að kynningarmálum og miðlun upplýsinga til íbúa
  • Börn og íþróttir: Leiðarljós íþrótta er að efla félagsfærni, öryggi og vellíðan barna og annarra iðkenda. 
  • Velferðarkerfi barna: Íþróttafélög verði virkur þáttur í velferðarkerfi barna. Þjálfarar fái fræðslu um farsæld barna, áhættuhegðun og samskiptaerfiðleika.
  • Forvarnargildi íþrótta: Standa þarf þannig að málum að íþróttir séu alltaf áhrifarík forvörn fyrir börn og unglinga þar sem myndast vinatengsl og jákvæð hópmenning. 

5. Velferðarþjónusta

  • Þjónusta við börn: Hveragerði hefur sterka velferðarþjónustu – nálægð, yfirsýn og samvinna eru styrkleikar. Þó eru tækifæri til umbóta því biðtími eftir þjónustu er stundum of langur og aðgengi að sérfræðingum, sérstaklega í geðheilbrigðismálum barna, er ekki nægilegt. Stytta þarf biðtíma, efla stoðþjónustu og tryggja raunveruleg úrræði fyrir fjölskyldur sem á þurfa að halda. Það byggist ekki síst á því að styrkja samstarfið við ríkið sem S-listinn mun gera komist hann í bæjarstjórn. 
  • Þjónusta við eldra fólk. Það er gott að eldast í Hveragerði og Félag eldri borgara er með öflugt starf. S-listinn ætlar að vinna að þróun þjónustunnar í góðu samstarfi við félagið. Við þurfum að tryggja að félagsstarfið nái til allra. Einangrun eldri borgara raunveruleg áskorun sem við getum brugðist við með góðri tengingu félagsstarfsins og heimaþjónustu. S-listinn vill því gefa út gott kynningarefni fyrir eldri borgara og gera bókasafnið gjaldfrjálst fyrir þá.
  • Velferðartækni er víða orðin mikilvægur þáttur í þróun félagsþjónustu. S-listinn ætlar að skoða kosti þess að nýta þessa tækni meira. Velferðartækni getur verið viðbót við innlit heimaþjónustunnar. Hún felur í sér notkun tæknilausna til að bæta lífsgæði einstaklinga og tryggja öryggi. Dæmi um velferðartækni eru skjáheimsóknir í gegnum myndfundarbúnað og lyfjaskammtarar. Nefna má öryggiskerfi eins og neyðarhnappa, sem margir þekkja, og skynjara sem geta greint fallslys eða óeðlilega hegðun. 

6. Fjármál og stjórnsýsla

  • Afgreiðsla erinda: S-listinn ætlar að tryggja að stjórnsýsla bæjarins sé skilvirk, það á til að mynda við um afgreiðslu erinda sem ættu alltaf vera skráð í rafræna málaskrá. Innra eftirlit skal tryggja að öll mál hljóti eðlilegan framgang og þeim svarað. 
  • Upplýsingagjöf: S-listinn ætlar að tryggja aðgengilega og skýra upplýsingagjöf til íbúa svo þeir geti skilið og tekið þátt í þróun samfélagsins. Með lifandi stöðuyfirliti er byggt upp traust meðal íbúa.
  • Fjármál: S-listinn ætlar að ástunda góða fjármálastjórnun sem snýst um að tryggja ábyrga meðferð opinbers fjár, halda rekstri í jafnvægi og styðja við þjónustu til íbúanna.  

7. Atvinna

Í Hveragerði er gott að þróa það sem bærinn er sterkur í. Gefa þarf námsmönnum, starfsfólki í fjarvinnu og einyrkjum tækifæri til að blómstra með góðri aðstöðu. Styrkja þarf samstarfið við einstaklinga sem búa yfir skapandi hugsun. Einnig við fyrirtæki, stofnanir og skóla sem hafa sérþekkingu til að mynda á heilsutengdri ferðaþjónustu, garðyrkju, grænu atvinnulífi, náttúruupplifun, tónlist, myndlist og sviðslistum svo eitthvað sé nefnt. Samfélagið í Hveragerði gæti sameinast um nokkra viðburði á hverju ári eins og blómahelgi, listamannahelgi og heilsuhelgi sem myndu gera bæinn að upplifunarmiðstöð.

Samfylkingin birtir auglýsingar á samfélagsmiðlum og í gegnum auglýsingamiðlara til þess að koma skilaboðum sínum á framfæri til þeirra sem flokkurinn telur gagn hafa að. Er það gert með því að óska eftir því að þessir aðilar birti auglýsingarnar þeim notendum sínum sem uppfylla ákveðin skilyrði. Samfylkingin fær aldrei neinar persónuupplýsingar til sín um notendur. Breyturnar sem unnið er með eru aldur, kyn og búseta. Nánari upplýsingar um persónuverndarstefnu Samfylkingarinnar.