Horft til framtíðar 

Kosningastefna Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ 2026 - 2030

Samfylkingin kynnir hér sín helstu stefnumál þar sem horft er til framtíðar. 

  • Aðstoð við barnafjölskyldur: Komum betur til móts við barnafólk og yngstu meðlimi samfélagsins.
  • Stuðningur við eldra fólk: Eflum þjónustu svo fleiri geti búið lengur í heimahúsum.
  • Einfaldara regluverk: Auðveldum rekstur fyrirtækja með því að hafa einn skýran viðkomustað hjá sveitarfélaginu.

1. Heimilið í forgangi

  • Uppbygging íbúðarhúsnæðis: Sveitarfélagið taki virkan þátt í húsnæðisuppbyggingu í samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög, með sérstaka áherslu á ungt fólk og eldri íbúa.
  • Efling öldrunarþjónustu: Tryggjum samþætta heimaþjónustu, höldum úti virku öldrunarráði og beitum okkur fyrir að 4. hæð Hlífar verði breytt í íbúðir.
  • Öflug þjónusta við fatlað fólk: Tryggjum jöfn tækifæri með skýrum boðleiðum og samþættri þjónustu í anda laga um farsæld barna og samnings SÞ.
Börn á Ísafirði

2. Að vaxa og dafna

Tækifæri og framtíð barna og ungmenna

  • Endurskoðun leikskólamála: Setjum þak á leikskólagjöld, bætum starfsumhverfi barna og kennara, byggjum nýjan leikskóla og stofnum „opinn leikskóla“ til að styðja við foreldra í fæðingarorlofi.
  • Bætt skóla- og tómstundaumhverfi: Skýr framtíðarsýn með því að skoða uppbyggingu sérstaks húsnæðis fyrir unglingastig GÍ og félagsmiðstöð.
  • Jöfn tækifæri til þátttöku: Hækkum frístundastyrki, tryggjum jafnt aðgengi að íþróttum óháð búsetu og fylgjum markvissri forvarnarstefnu.

3. Lifandi samfélag

  • Listamannasamfélagið Ísafjarðarbær: Nýta kraft skapandi greina til að marka sveitarfélagið sem heillandi valkost fyrir listafólk.
  • Hækkun menningarstyrkja: Endurskoða og hækka menningarstyrki og tryggja rekstrarumhverfi menningarrýma, t.d. með þríhliða samningi um Edinborgarhúsið.
  • Aðgengi að menningu: Brjóta niður aðgengishindranir milli byggðakjarna svo allir íbúar geti notið viðburða, til dæmis með skipulögðum rútuferðum á hátíðir.

4. Daglegt líf sem virkar 

  • Hreint og grænt umhverfi: Tryggja reglulegt viðhald gangstétta, bæta sorphirðu og standa vörð um náttúruperlur og græn svæði.
  • Sjálfbærni og loftslagsmál: Hafa umhverfisvernd að leiðarljósi við alla ákvarðanatöku og vinna eftir aðgerðabundinni loftslagsstefnu.
  • Viðhald fasteigna og skipulag: Bæta fyrirbyggjandi viðhald á eignum bæjarins til að spara til lengri tíma og ljúka gerð aðalskipulags fyrir samræmda byggðaþróun.

5. Öflug störf  og öruggar tengingar 

  • Öruggir innviðir: Berjast fyrir tvítengingu Landsnets fyrir stöðugt rafmagn og standa vörð um öruggar flugsamgöngur til og frá svæðinu.
  • Samvinna við atvinnulífið: Halda uppi virku samtali við fyrirtæki, einfalda stjórnsýslu og hafa fastan tengipunkt til að greiða fyrir nýsköpun og uppbyggingu.
  • Hafnsækin starfsemi: Styðja við sjávarútveg, fiskeldi og ferðaþjónustu með því að gæta að uppbyggingu og viðhaldi hafna í öllum byggðakjörnum.

6. Vald til íbúa

  • Efla íbúalýðræði: Bæta aðgengi íbúa utan Ísafjarðar að ákvarðanatöku, styrkja hverfaráð og ráða verkstjóra fyrir hvern byggðakjarna.
  • Skilvirkari stjórnsýsla: Endurskoða verkferla á skrifstofu bæjarins til að flýta afgreiðslu mála og bæta þjónustu við íbúa.
  • Ábyrg fjármálastjórn: Halda áfram að greiða niður skuldir til að skapa aukið svigrúm fyrir mikilvægar fjárfestingar og uppbyggingu til framtíðar.
Samfylkingin birtir auglýsingar á samfélagsmiðlum og í gegnum auglýsingamiðlara til þess að koma skilaboðum sínum á framfæri til þeirra sem flokkurinn telur gagn hafa að. Er það gert með því að óska eftir því að þessir aðilar birti auglýsingarnar þeim notendum sínum sem uppfylla ákveðin skilyrði. Samfylkingin fær aldrei neinar persónuupplýsingar til sín um notendur. Breyturnar sem unnið er með eru aldur, kyn og búseta. Nánari upplýsingar um persónuverndarstefnu Samfylkingarinnar.