Í forystu fyrir fólk og fjölskyldur

Kosningastefna Samfylkingarinnar í Norðurþingi 2026 - 2030

1. Fjölskyldan númer eitt - Tökum ábyrgð hvert á öðru

Óháð stöðu þinni og æviskeiði ætlum við að létta þér daglega lífið. Við munum sinna öflugri þjónustu við alla íbúa, því við erum sterkari saman.

  • Engin fjölskylda greiði meira en 50 þúsund krónur á mánuði í leikskóla og frístund (dvalargjald og fæðisgjald) – en tekjulægri greiði minna.
  • Komum á jafnvægi milli álags á fjölskyldur og starfsfólk í skólakerfinu. Finnum farsæla lausn á útfærslu sérskráningadaga í samvinnu við starfsfólk og fjölskyldur.
  • Lögum hljóðvist í húsnæði sveitafélagsins.
  • Hækka frístundastyrki í áföngum uppí 50.000. kr. fyrir lok kjörtímabils.
  • Eflum samstarf við Öldungarráð, Notendaráð fatlaðra og Ungmennaráð. Veitum þeim sterkari rödd og aukið vægi.
  • Hafa samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks að leiðarljósi í ákvarðanatöku í sveitarfélaginu.
  • Tökum vel á móti öllum sem velja að gera Norðurþing að sínu heimili.

2.  Lifandi samfélag

Lifandi samfélag er gott samfélag. Gerum Norðurþing að enn betri stað til að dvelja á og heimsækja allt árið um kring. Ræktum garðinn okkar svo við getum öll fengið að vaxa og dafna.

  • Eflum Kópasker og Raufarhöfn sem eftirsóknarverða áfangastaði - uppbygging á tjaldsvæðum og leikvöllum í forgangi.
  • Styrkjum starf hverfisráða til dæmis með beinni úthlutun á framkvæmdafé. Veitum þeim sterkari rödd og aukið vægi.
  • Barnvænar skemmtilegar gönguleiðir á milli skóla og frístundasvæða. Helstu gönguleiðir barna eiga að vera líflegar og öruggar. Klárum umferðaröryggisáætlun.
  • Finna leiðir til að efla heilsársferðamennsku í öllu sveitarfélaginu í samvinnu við hagsmunaðila. Gerum Norðurþing að spennandi áfangastað allt árið um kring.
  • Móta framtíðarhlutverk fyrir Hvamm sem mun koma til með að breytast með tilkomu nýs hjúkrunarheimilis.
  • Styðjum íbúa í gegnum félagsstarf og fyrirbyggjum þannig einangrun og einmanaleika.
  • Styðjum við öflugt menningarlíf með viðburðum og styrkjum til leikfélaga.
  • Eflum íþrótta og tómstundastarf í samfélaginu fyrir öll.

3. Rekstur og þjónusta

Næstu ár gætu reynst áskorun fyrir sveitarfélagið og þann tíma þurfum við að nýta vel. Vinnum að atvinnuuppbyggingu og mörkum skýra sýn á hvernig við viljum að sveitarfélagið okkar verði til framtíðar.

  • Stuðla að uppbyggingu á Bakka sem styrkir fjárhag og mannlíf sveitarfélagsins.
  • Tökum vel á móti nýjum atvinnutækifærum og hlúum að fyrirtækjum sem fyrir eru.
  • Sjúkraflug um Húsavíkurflugvöll þarf að vera tryggt opna þarf möguleika á að hefja áætlunarflug að nýju.
  • Fólk í forgangi. Grunnþjónusta með þarfir og réttindi íbúa að leiðarljósi.
  • Nýtum kjörtímabilið í áætlunargerð í samstarfi við íbúa. Hættum að setja plástra á sárin. Verum tilbúin með hvert við ætlum að stefna og hvað við gerum í framtíðinni.
  • Stöndum vörð um þau mál sem gera samfélag að góðu samfélagi. Oft eru það litlu hlutirnir sem skipta mestu máli.

4. Framkvæmdir með fjölskylduna í forgrunni

Í rekstri sveitarfélaga þarf stöðugt að forgangsraða, vega og meta hvaða málefni eru brýnust hverju sinni. Nauðsynlegt er að horfa fram í tímann og skipuleggja það sem framundan er. Samfylkingin vill forgangsraða framkvæmdum í þágu fjölskyldunnar.

  • Setja byggingu leikvalla í forgang með skólalóðir Borgarhólsskóla, Grænuvalla, Öxarfjarðarskóla og Raufarhafnarskóla í fyrsta sæti. Augljóslega hafa þessi mál ekki verið í forgangi hingað til.
  • Forgangsraða framkvæmdafé í þágu fjölskyldunnar.
  • Bætum og byggjum upp göngustíga og útivistarleiðir í sveitarfélaginu.
  • Gerum viðhaldsáætlanir á fasteignum sveitarfélagsins. Íþróttamannvirki í forgang. Þau mannvirki eru dýr í uppbyggingu en jafnframt mest nýttu fasteignir sveitarfélagsins. Það er dýrt að taka rangar ákvarðanir í þeim málum.
  • Hús fyrir heilsutengda starfsemi. Samtal við aðila í heilsutengdri starfsemi um uppbyggingu á húsnæði. Norðurþing byggi húsnæði með það að sjónarmiði að gera langtíma leigusamning við þá sem sýna verkefninu áhuga. Leigutekjur komi til með standa undir kostnaði. Með þessu tryggjum við starfseminni húsnæði til framtíðar.
Samfylkingin birtir auglýsingar á samfélagsmiðlum og í gegnum auglýsingamiðlara til þess að koma skilaboðum sínum á framfæri til þeirra sem flokkurinn telur gagn hafa að. Er það gert með því að óska eftir því að þessir aðilar birti auglýsingarnar þeim notendum sínum sem uppfylla ákveðin skilyrði. Samfylkingin fær aldrei neinar persónuupplýsingar til sín um notendur. Breyturnar sem unnið er með eru aldur, kyn og búseta. Nánari upplýsingar um persónuverndarstefnu Samfylkingarinnar.