Arna Lára Jónsdóttir

vill helst vera úti að leika sér með fjölskyldu og vinum

Bæjarstjórinn að vestan

Arna Lára Jónsdóttir fæddist á Ísafirði 30. maí 1976 og hefur búið fyrir vestan mest megnið af lífinu fyrir utan námsárin í Reykjavík og Kaupmannahöfn. En þar lagði Arna stund á stjórnmálafræði og síðar viðskiptafræði.

Ísafjörður er góður mótunarstaður og mín kynslóð fékk snemma tækifæri til að vinna í frystihúsinu, þar tileinkaði ég mér vinnubrögð sem ég nota enn í dag. Lengst af hef ég unnið að nýsköpun og atvinnuþróun í bland við dass af byggðaþróunarverkefnum. Fyrst hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða og svo hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Ég átti mjög góð ár hjá Eimskip á Ísafirði sem var mjög lærdómsríkt og skemmtilegt, og gott að komast aftur í beina tengingu við raunhagkerfið. Síðustu ár hef ég starfað sem bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar en ég hef verið verið bæjarfulltrúi frá árinu 2006, þannig að sveitarstjórnarmál hafa verið stór hluti af mínu lífi.   

Sambýlismaðurinn minn, Ingi Björn Guðnason kemur frá Selfossi. Ég á þrjú börn, Hafdísi sem stundar doktorsnám í efnafræði í Bretlandi, Helenu sem er í stýrimannaskólanum og Dagur sem býr enn í foreldrahúsum. Ég er mikil félagsvera og vill helst vera úti að leika mér með fjölskyldu og vinum. Alls kyns skíði, gönguferðir, skokk og hjólreiðaferðir koma þar við sögu. 

Ég hlakka til að setjast á þing og tala máli Norðvesturkjördæmis og vinna að málefnum sem þar brenna á. Ég þori að fullyrða að það hefur aldrei verið jafn auðvelt að tala máli Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi.

Nokkrar laufléttar......

  • Minn leyndi hæfileiki sem einhverjar hafa fengið að njóta er sköpunargáfa við lestur tarot spila. Svo á ég mjög auðvelt með að tengja fólk við bílnúmer, algjörlega gagnslaus hæfileiki. 

  • Ef ég ætti að bjóða upp á gourmet Samfylkingarsamloku þá myndi ég græja rækjubrauð. 

    Til samlokugerðarinnar þarf auðvitað brauð og mæli ég með súrdeigsbrauði eða heimabökuðum skonsum. Það eru ákveðin lykilatriði sem þarf að fara eftir ef gera á gott rækjubrauð.

    Allra best er að nota rækjur frá Kampa á Ísafirði. Þær eru bara eitthvað annað, en það skal samt segjast að ég er rækjusnobbari. Sjóða þarf egg í salatið en passa skal að sjóða þau ekki of mikið. Þegar salatið er sett saman þá er byrjað á því að hræra mæjóið, svo eru eggin sett í og að lokum rækjunum bætt saman við en gott er að yfirfara rækjurnar og passa að engin skel rati í salatið.

    Salatið er svo bragðbætt með aromat kryddi og jafnvel smá sítrónupipar. 

  • Hamingjan felst í því að vera sæl í sinni, njóta stað og stundar með fjölskyldu og vinum. Þetta gleymist oft í ati hversdagsins. 

Nokkrar úr albúminu

  • Í faðmi fjölskyldunnar
  • Hvergi betra að vera en úti í íslensku sumri á fjöllum