Léttum daglega lífið í Kópavogi

Kosningastefna Samfylkingarinnar í Kópavogi 2026 - 2030

1. Léttum lífið hjá fjölskyldum

Þannig sköpum við andrými fyrir gæðastundir.

Lægri álögur á barnafjölskyldur

  • Þak á leikskólagjöld. Engin fjölskylda borgi meira en 50.000 kr. á mánuði í leikskólagjöld. 
  • 100% systkinaafsláttur. Innleiðum hærri systkinaafslátt í skrefum og komum til móts við fjölskyldur með mörg börn.
  • Systkinaafsláttur þvert á skólastig. Sami afsláttur gildi í leikskóla, frístund og sumarnámskeiðum á vegum bæjarins.
  • Lægri gjöld vegna frístundavagns. Bærinn stígi inn og lækki kostnaðarhlutdeild foreldra.
  • Brúum bilið. Öll börn 12 mánaða og eldri fái leikskólapláss, með lögleiðingu leikskólastigsins í samvinnu ríkis og sveitarfélaga.

Öflugri kennsla og stuðningur við öll börn

  • Stytting biðlista eftir stuðningi. Yfir 100 börn bíða eftir lögbundinni stuðnings- og stoðþjónustu. Við munum tryggja snemmtæka íhlutun og aðgengi að sálfræðingum, félagsráðgjöfum og fagfólki í öllum skólum.
  • Efling sérúrræða. Skoða stofnun sérskóla í Kópavogi, mögulega í samstarfi við nágrannasveitarfélög, til þess að tryggja sérhæfða og samfellda þjónustu fyrir þann hóp barna sem þarf á því að halda og fjölga plássum í sérdeildum.
  • Færri nemendur í bekk. Minnkum álag á kennara og börn með stærri kennsluteymum.
  • Fleiri kennarar. Ráðumst í átak í ráðningu og menntun grunnskólakennara í Kópavogi. 
  • Bætum við fagfólki í skólanna. Förum í markvisst átak í ráðningum þroskaþjálfa, atferlisfræðinga, talmeinafræðinga og tómstundafræðinga í samráði við skólastjórnendur og fagaðila.

Setjum æskulýðsmálin í forgang

  • Hækkum frístundastyrkinn. Frístundastyrkurinn á að standa undir kostnaði á einni íþrótt og hækka með aldri barns.
  • Heilsusamlegar skólamáltíðir. Tryggjum að skólamáltíðir séu samkvæmt næringarviðmiðum.
  • Félagsmiðstöðvar opnar alla daga. Tryggjum að ungmenni hafi ávallt öruggan og eflandi samastað í umsjón fagfólks. 
  • Sumaropnun frístundaheimila. Veitum samræmda sumarfrístund í Kópavogi eins og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu.

Veitum fötluðu fólki lögbundna þjónustu. 

  • Stytting biðlista. Styttum biðlista og setjum skýr viðmið um hámarksbiðtíma eftir stuðningi, búsetuúrræðum og dagþjónustu.
  • Efld akstursþjónusta. Elfum lykilþjónustu sem á að mæta raunverulegum þörfum fatlaðs fólks.
  • Atvinnuþátttaka. Bærinn bjóði upp á sveigjanleg störf fyrir fólk með breytilega starfsgetu og aukum markvisst samstarf við fyrirtæki í sveitarfélaginu um sveigjanleg störf.
  • Einföldun þjónustuferla. Sjáum til þess að enginn falli á milli kerfa og sveitarfélagið veiti skýrar upplýsingar í gegnum einn tengilið. 

2.  Hlúum að fólkinu sem byggði landið

Þannig tryggjum við að enginn sé einn á sínu ævikvöldi.

Sjálfstætt líf á eigin heimili

  • Stórefling heimaþjónustu. Gerum eldra fólki kleift að geta búið sjálfstætt eins lengi og það sjálft kýs.
  • Fjölbreytt húsnæði fyrir eldra fólk. Ráðumst í markvissa uppbyggingu á húsnæði í mismunandi stærðum og gerðum sem hentar öllum aldursstigum.
  • Uppbygging þjónustukjarna. Undirbúum byggingu þjónustukjarna tímanlega og spornum þannig við uppsöfnun biðlista.

Ein þjónusta, einn snertiflötur

  • Samþætting heimaþjónustu og heimahjúkrunar. Veitum þjónustu, upplýsingar og eftirfylgni á einum stað í stað þess að láta notendur þjónustu ganga á milli kerfa.
  • Tengiráðgjafar. Aðstoðum eldra fólk við að sækja sér þjónustu og sköpum umhverfi svo það geti haldist í virkni.
  • Uppbygging á hjúkrunarrýmum. Köllum ríkið og rekstraraðila hjúkrunarheimila að borðinu og ráðumst saman í uppbyggingu fleiri hjúkrunarrýma.

Rjúfum einmanaleika

  • Félagsstarf á jafningjagrundvelli. Valdeflum 67–75 ára hópinn til að skipuleggja eigið félagslíf.
  • Bætt upplýsingagjöf um virknitilboð. Setjum upp skýrt yfirlit yfir þjónustu og félagsstarf fyrir eldra fólk.
  • Stöndum vörð um Virkni og vellíðan. Bætum upplýsingagjöf, miðlum skýrt upplýsingum um virknitilboð og þjónustu og viðhöldum verkefninu. 

3. Pössum upp á bæinn sem við elskum

Þannig verður betra að búa í Kópavogi.

Vöndum okkur í skipulagi og verndum græn svæði

  • Snúum okkur að Kópavogi. Á heildina litið verður húsnæðisvandinn ekki leystur í Kópavogi. Snúum forgangsröðum skipulagsákvörðunum í þágu þess að bæta bæinn fyrir núverandi íbúa.
  • Höldum þéttingu hóflegri og pössum upp á gæði. Setjum þróun byggðar þar sem þarfir íbúa í nærumhverfi, gott rými, aðgengi og græn svæði eru í fyrirrúmi.
  • Vernd grænna svæða. Dalir, strandlengjur og opin svæði njóti verndar í skipulagi bæjarins.
  • Heildstætt skipulag. Samræmum áætlanir, skipuleggjum heildrænt og stöndum við áætlanir.
  • Miðbær Kópavogs. Skýr og metnaðarfull plön fyrir lifandi miðpunkt mann- og atvinnulífs, þjónustu og menningar.
  • Fleiri tré og gróðursetning. Ráðumst í markvissa uppbyggingu grænna svæða um allan bæinn.

Tryggjum fólki heimili

  • Nýtum plássið vel. Pláss undir ný hverfi er að þrotum komið í Kópavogi. Þess vegna er mikilvægt að ákvarðanir séu teknar til að nýta pláss sem eftir er vel.
  • Lóðir fyrir óhagnaðardrifið húsnæði. Förum í samstarf við verkalýðshreyfinguna og húsnæðissamvinnufélög og tryggjum lóðir undir óhagnaðardrifið húsnæði. 
  • Aukning á félagslegu húsnæði. Hlutfallið fer lækkandi miðað við íbúafjölda. Gerum áætlun um kaup á íbúðum til framtíðar.
  • Námsmannaíbúðir. Skipuleggjum svæði og hefjum samstarf við háskólana og stúdentafélögin og byggjum upp fyrstu námsmannaíbúðirnar í Kópavogi.
  • Húsnæði sem hentar. Tryggjum framboð á einstaklingsíbúðum og fjölbreyttu húsnæði.

Auðveldum reksturinn

  • Einfaldari leyfisveitingar. Setjum skýr tímamörk, færri formkröfur og einföldum leyfisferlið.
  • Einn viðkomustaður fyrir fyrirtæki. Léttum fyrirtækjum lífið með því að bjóða þeim upp á fastan tengipunkt fyrir samskipti þeirra við Kópavogsbæ. 
  • Breytt nálgun í leyfisveitingum. Treystum frumkvöðlum og fyrirtækjum til þess að hefja rekstur í stað þess að bíða eftir leyfi. Veitum leiðsögn og liðsinni um úrbætur þegar eftirlit leiðir í ljós að þörf er á úrbótum.
  • Atvinnuþróunarstefna. Setjum okkur skýra stefna um fjölbreytt og staðbundið atvinnulíf.

Lifandi menning og íþróttir í öllum hverfum

  • Menningarmiðstöð í efri byggðum. Reisum öfluga menningarinnviði í húsnæði sem er ætlað slíkri starfsemi.
  • Lengri opnunartími sundlauga. Höfum sundlaugar Kópavogs opnar þegar það er eftirspurn eftir þeirri þjónustu. 
  • Klárum íþróttamannvirkin. Kópavogsvöllur, Kórinn, sundlaugar og önnur íþróttamannvirki og aðstöður með það að leiðarljósi að bregðast við núverandi og framtíðar þörfum bæjarbúa. Gerum fjárfestingaráætlun til langs tíma á grundvelli fjárfestingargetu bæjarins í nánu samráði við íþróttafélögin.

Borgarlína, samgöngur og vistvænn bær

  • Borgarlínan sem burðarás. Tryggjum hagsmuni Kópavogsbúa með hröðum og áreiðanlegum tengingum Borgarlínunnar við Kópavog og nágrannasveitarfélög.
  • Samfellt göngu- og hjólastígakerfi. Bjóðum Kópavogsbúum upp á heildstætt net með áherslu á vetrarþjónustu og öryggi.
  • Gjaldfrjáls strætó fyrir 12–17 ára. Innleiðum gjaldfrjálsar almenningssamgöngur í skrefum fyrir 12-17 ára. 

Ábyrgur rekstur og gagnsæ stjórnsýsla

  • Sjálfbær fjármál. Sjáum til þess að rekstur Kópavogs standi undir sér án einskiptisaðgerða eins og lóðaúthlutana.
  • Minni skuldsetning. Viðvarandi skuldsetning sveitarfélagsins er dulin skattlagning á íbúa Kópavogs í framtíðinni.
  • Öflug stafræn þjónusta. Tryggjum einfaldar lausnir, gagnsæja afgreiðslu og að stafrænt þjónustusvæði bæjarins virki.
  • Raunverulegt samráð. Tryggjum að samtal við bæjarbúa sé ekki til sýnis heldur og tökum mark á athugasemdum og ábendingum. Það tryggir meiri sátt og betri ákvarðanir.
Samfylkingin birtir auglýsingar á samfélagsmiðlum og í gegnum auglýsingamiðlara til þess að koma skilaboðum sínum á framfæri til þeirra sem flokkurinn telur gagn hafa að. Er það gert með því að óska eftir því að þessir aðilar birti auglýsingarnar þeim notendum sínum sem uppfylla ákveðin skilyrði. Samfylkingin fær aldrei neinar persónuupplýsingar til sín um notendur. Breyturnar sem unnið er með eru aldur, kyn og búseta. Nánari upplýsingar um persónuverndarstefnu Samfylkingarinnar.