Ísland í samfélagi þjóðanna
Ísland á að reka mannúðlega utanríkisstefnu sem miðar í senn að því að styrkja stöðu Íslands á alþjóðavettvangi og leggja okkar af mörkum við úrlausn þeirra risavöxnu áskorana sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir.
Samfylkingin leggur áherslu á að Ísland beiti sér fyrir jöfnuði og mannréttindum um allan heim og sé alltaf málsvari friðar, mannúðar, jafnréttis og lýðræðis.
Sjaldan hefur verið jafn mikilvægt og nú að alþjóðasinnar snúi bökum saman, fylki sér um grunngildi opins lýðræðisþjóðfélags og standi vörð það sem áunnist hefur í alþjóðasamvinnu frá lokum síðari heimsstyrjaldar.
Veldu málefni undir ísland í samfélagi þjóðanna
- Inngangur
- Samfylkingin er Evrópusinnaður flokkur
- Þátttaka í varnar- og öryggissamstarfi vestrænna þjóða
- Norrænt samstarf
- Samstaða með kúguðum og jaðarsettum
- Þróttmikil þróunarsamvinna
- Gegn skaðlegri skattasamkeppni
Græn utanríkisstefna
Norrænt samstarf hefur alltaf verið hornsteinn utanríkisstefnu Íslands og hefur líklega aldrei verið mikilvægara en nú. Þar þarf nýjan samstarfssáttmála sem tryggir skilvirkari samvinnu til að takast á við þau stóru verkefni sem bíða. Vestnorrænt samstarf er mikilvægt og ber að efla en Ísland, Grænland og Færeyjar eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta í mörgu. Efla á raddir Grænlands og Færeyja innan Norðurlandaráðs.