Ísland í samfélagi þjóðanna
Ísland á að reka mannúðlega utanríkisstefnu sem miðar í senn að því að styrkja stöðu Íslands á alþjóðavettvangi og leggja okkar af mörkum við úrlausn þeirra risavöxnu áskorana sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir.
Samfylkingin leggur áherslu á að Ísland beiti sér fyrir jöfnuði og mannréttindum um allan heim og sé alltaf málsvari friðar, mannúðar, jafnréttis og lýðræðis.
Sjaldan hefur verið jafn mikilvægt og nú að alþjóðasinnar snúi bökum saman, fylki sér um grunngildi opins lýðræðisþjóðfélags og standi vörð það sem áunnist hefur í alþjóðasamvinnu frá lokum síðari heimsstyrjaldar.
Veldu málefni undir ísland í samfélagi þjóðanna
- Inngangur
- Samfylkingin er Evrópusinnaður flokkur
- Græn utanríkisstefna
- Þátttaka í varnar- og öryggissamstarfi vestrænna þjóða
- Samstaða með kúguðum og jaðarsettum
- Gegn skaðlegri skattasamkeppni
- Kraftmikil þróunarsamvinna
Samstaða með kúguðum og jaðarsettum
Samfylkingin stendur með þjóðum sem þurfa að þola ólöglegt hernám og yfirgang, svo sem í Palestínu og Úkraínu, og gerir kröfu um að reglur þjóðaréttar um friðsamleg samskipti þjóða séu virtar í hvívetna. Ísland á alltaf að taka skýra afstöðu gegn mannréttindabrotum, styðja réttindabaráttu viðkvæmra hópa á heimsvísu og taka forystu í baráttu gegn fordómum og hvers kyns mismunun.