Með hjartað á réttum stað fyrir Skagaströnd

Kosningastefna Samfylkingar og óháðra á Skagaströnd

1. Gott samband við íbúa

Það er mikilvægt að sveitarstjórn eigi í góðu sambandi við íbúa allt kjörtímabilið. Við viljum leggja áherslu á að leiða starf sveitarfélagsins með góðum og faglegum samskiptum.

  • Gott samtal er grunnurinn að öflugu samfélagi

Við viljum hafa reglulega íbúafundi

Hvers vegna?

  • Við viljium að íbúar séu upplýstir um málefni sveitarfélagsins
  • Við viljum líka heyra beint frá íbúum: Hverjar eru helstu áskoranir? - Nýjar hugmyndir - Hvað má betur fara - Hvað er vel gert?

2. Markaðssetning

Við viljum auglýsa Skagaströnd á samfélagsmiðlum með lifandi hætti

  • Við viljum að allir viti hvað við eigum fallegan bæ
  • Við viljum sýna náttúruna hér í kring og upplifunina sem hún býður upp á
  • Við viljum laða að gesti og nýja íbúa
  • Við viljum kynna frábært skólastarf og gott samstarf á milli skólanna.
  • Fríar lóðir til bygginga íbúðahúsnæðis
  • Atvinnutækifæri sem felast í aðstöðu sem nú þegar er til staðar t.d. í Atwork og vörusmiðju Biopol
  • Að hér situr enginn fastur í umferð nema bara til þess að spjalla
  • Félagsheimilið Fellsborg sem frábæran kost fyrir viðburði, t.d. ættarmót, fundi og ráðstefnur

3. Bærinn minn - Samstarfsverkefni íbúa og sveitarstjórnar

Þegar rými gefst til skemmtilegra uppbyggingaverkefna geta íbúar sent inn tillögur sem íbúar kjósa um.

Um er að ræða beina aðkomu íbúa að ákvörðunum sem rúmast innan verkefnisins.

Hvers vegna?

  • Það er mikilvægt að fá að hafa áhrif á umhverfi sitt
  • Það stuðlar að samheldni íbúa og styrkir þannig samfélagið

4. Vellíðan íbúa

Okkar markmið er að stuðla að aukinni vellíðan íbúa og efla þannig jákvætt, sterkt og samheldið samfélag.

Við viljum m.a. leggja áherslu á:

  • Að efla útivistarsvæði fyrir börn og fjölskyldur
  • Að viðhalda mikilvægum stuðningi við íþrótta- og tómstundastarf
  • Kanna möguleika á aðgangsstýringu í íþróttahúsi með það að markmiði að auka aðgengi að tækjasal
  • Draga úr félagslegri einangrun eldri borgara með fjölbreyttara framboði af félags- og tómstundastarfi

5. Fjölgun íbúa 

Við viljum leggja kapp á fjölgun íbúa - þess vegna leggjum við áherslu á:

  • Markaðssetningu Skagastrandar
  • Engin fjölskylda greiði meira en 50.000 kr. á mánuði fyrir 40 tíma leikskólaviku (tíma- og fæðisgjald)
  • Áframhaldandi uppbyggingu íbúðarhúsnæðis

6. Atvinnumál

Við viljum leggja allt kapp á að leita að nýjum atvinnutækifærum.

  • Við viljum auðvelda uppbyggingu fyrirtækja með leiðsögn og aðgengi að stuðningsúrræðum.
  • Við leggjum líka áherslu á að sveitarfélagið kaupi þjónustu í heimabyggð.

7. Skólastarf

Öflugt skólastarf er ein af mikilvægustu grunnstoðum hvers samfélags. Við viljum styðja við gott skólastarf m.a. með því að :

  • Halda áfram að efla gott skólastarf í samvinnu við starfsfólk og foreldra
  • Kanna áhuga á því að Hjallastefna haldi áfram upp á yngsta stig í grunnskóla
  • Vinna að því að færa starfsemi tónlistarskóla í grunnskóla
Samfylkingin birtir auglýsingar á samfélagsmiðlum og í gegnum auglýsingamiðlara til þess að koma skilaboðum sínum á framfæri til þeirra sem flokkurinn telur gagn hafa að. Er það gert með því að óska eftir því að þessir aðilar birti auglýsingarnar þeim notendum sínum sem uppfylla ákveðin skilyrði. Samfylkingin fær aldrei neinar persónuupplýsingar til sín um notendur. Breyturnar sem unnið er með eru aldur, kyn og búseta. Nánari upplýsingar um persónuverndarstefnu Samfylkingarinnar.