Ný forysta í Garðabæ

Stefnuskrá Samfylkingarinnar í Garðabæ 2026 - 2030

Lækkum kostnað heimila í Garðabæ

  • Minnkum skutlið – frítt í strætó fyrir börn og ungmenni
    Samhliða bætum við nærþjónustuna
  • Hækkum hvatapeninga, lækkum aldursmörk og aukum frelsi
    Aldursmörk lækkuð niður í 3 ára og í fyrstu atrennu hækkum við hvatapeningana í 75.000 kr.
  • Þak á leikskólagjöld og 100% systkinaafsláttur
    Ekkert heimili greiðir meira en 50.000 kr. í leikskólagjöld

Gott að eldast í Garðabæ

  • Örugg og persónuleg leiðsögn í gegnum völundarhús kerfisins
    Aðgengileg og samþætt þjónusta í gegnum tengiráðgjafa sem hefur nauðsynlega yfirsýn
  • Byggjum lifandi lífsgæðakjarna
    Þjónustuíbúðir í líflegu og heilsueflandi umhverfi
  • Leiðandi í notkun velferðartækni
    Styðjum við sjálfstæða búsetu og öryggi heimavið með notkun snjallra tæknilausna

Framúrskarandi skólar í Garðabæ

  • Bætt vinnuaðstaða fyrir alla nemendur
    Næðis- og færnirými og aukinn stuðningur til að mæta ólíkum þörfum barna í skólunum
  • Öflug sérdeild í Garðabæ
    Miðstöð þekkingar sem mætir einstaklingsbundnum þörfum
  • Grípum börnin snemma – eflum skólafærni
    Aukinn stuðningur í fyrstu bekkjum grunnskóla þar sem grunnur að farsælli skólagöngu er lagður

Sterkur og skapandi Garðabær

  • Opnum bókhaldið og treystum reksturinn
    Skattgreiðslur íbúa eiga að skila sér í grunnþjónustuna
  • Auðveldum rekstur og uppbyggingu fyrirtækja í Garðabæ
    Einn viðkomustaður inn í kerfið og skýr tímamörk leyfisveitinga
  • Frá skjánum í sköpun: Nýsköpunar- og menningarhús
    Lifandi húsnæði þar sem Garðbæingar geta þróað hugmyndir sínar og skapað
  • Höldum unga fólkinu í bænum
    Húsnæði fyrir ungt fólk inn í skipulag Garðabæjar