Sterkari saman
Kosningastefna Samfylkingarinnar á Akureyri 2026 - 2030
1. Léttum þér daglega lífið
Sama í hvaða stöðu og á hvaða æviskeiði þú ert ætlum við okkur að létta þér daglega lífið. Við munum sinna öflugri þjónustu við alla íbúa, því við erum sterkari saman.
- Setjum þak á kostnað fjölskyldna vegna leikskólagjalda. Innleiðum 100% systkinaafslátt og höfum skráningardaga endurgjaldslausa.
- Bjóðum upp á sumarfrístund fyrir öll börn frá fyrsta til fjórða bekkjar grunnskólanna, þar sem börnin geta unað sér í umhverfi sem þau þekkja.
- Tengjum saman síðasta leikskólasumarið við upphaf skólagöngu hjá 6 ára börnum.
- Minnkum skutlið. Endurhönnum leiðarkerfið og fjölgum ferðum þannig að strætó sé alvöru valkostur í samgöngum.
- Gerum gjaldtöku bæjarins skýra og fyrirsjáanlega. Hver og einn á að geta nálgast yfirlit yfir öll gjöld sem bærinn innheimtir á einum stað.
- Hækkum frístundastyrki barna í 75.000 krónur og vinnum með íþróttafélögum við að halda kostnaði við búnað og keppnisferðir niðri.
- Stóraukum framboð af félagslegu húsnæði og styttum biðlista.
- Gætum að samkeppnishæfni við höfuðborgarsvæðið í álagningu fasteignagjalda og lækkum fasteignagjöld.
- Auðveldum rekstur og uppbyggingu á Akureyri með einum tengipunkti sveitarfélagsins við atvinnulífið á Akureyri. Setjum á fót Atvinnulífsstofu sem verður sá tengipunktur og innleiðir aðgerðir atvinnu- og vaxtarstefnunnar.
2. Hlúum að hverju barni
Gætum þess að velferð og líðan barna og ungmenna sé ávallt í forgrunni.
Aukum við sérúrræði á borð við Hlíðaskóla, biðlistar eru langir og þörfin er til staðar.
- Aukum sveigjanleika í inntöku barna á leikskóla og í sumarleyfum leikskóla.
- Hefjum átak í list- og verkgreinakennslu inni í grunnskólum.
- Stóraukum kennslu í íslensku sem annað mál í grunnskólum.
- Gerum börnum og ungmennum kleift að stunda myndlistarnám á Akureyri.
- Hækkum frístundastyrki barna í 75.000 krónur og vinnum með íþróttafélögum við að halda kostnaði við búnað og keppnisferðir niðri.
- Eflum starf félagsmiðstöðva og hugum sérstaklega á aldursbilinu 16-18 ára; eftir að grunnskóla lýkur og þar til lögaldur næst.
- Vinnum markvisst að bættum loftgæðum í bænum og tökum afleiðingar svifryksmengunar alvarlega.
- Húsnæði, húsnæði, húsnæði
3. Húsnæði, húsnæði, húsnæði
Styttum biðlista eftir félagslegu húsnæði og tryggjum að í öllu nýju skipulagi sé gert ráð fyrir 35% óhagnaðardrifinni uppbyggingu. Húsnæðisuppbygging á að eiga sér stað á forsendum bæjarbúa og það er nauðsynlegt að staldra við og hugsa upp á nýtt hvernig lóðum er úthlutað, bæði til einstaklinga og fyrirtækja.
- Gerum kröfu um 35% óhagnaðardrifna uppbyggingu í öllu nýju skipulagi íbúðabyggðar.
- Höldum áfram skynsamlegri þéttingu byggðarinnar í sátt við íbúa samhliða uppbyggingu nýrra hverfa. Eitt útilokar ekki annað.
- Hefjum vinnu við nýtt aðalskipulag og setjum markið hátt varðandi þróun íbúafjölda og atvinnutækifæra.
- Gerum Akureyrarvöll að grænni perlu þar sem náttúra, íbúabyggð og fjölbreytt mannlíf fer saman.
4. Áhyggjulaust og skemmtilegt ævikvöld
Sýnum fólkinu sem byggði þennan bæ þá virðingu sem það verðskuldar. Það á að vera gott að eldast. Tryggjum heldri Akureyringum áhyggjulaust og skemmtilegt ævikvöld.
- Reisum almennilega félagsaðstöðu fyrir eldra fólk í samstarfi við EBAK.
- Húsnæðisstefna Akureyrarbæjar á að vera fyrir alla íbúa, allt nýtt skipulag skal taka mið af þörfum eldra fólks.
- Samþættum þjónustu við eldra fólk og bætum þannig viðmót, öryggi og skilvirkni. Innleiðum verkefnið „Gott að eldast“ á Akureyri og bætum stuðning við heilabilaða og aðstandendur þeirra.
- Höldum verði lágu og gæðum háum á máltíðum eldri borgara.
- Rjúfum félagslega einangrun með að nota stafrænar lausnir og í samstarfi við hjálparsamtök þegar það á við.
- Bjóðum 70 ára og eldri frítt í sund.
- Bætum aðgengi að perlum bæjarins yfir vetrartímann, s.s. Lystigarðinum. Gætum að því að aðgengi hreyfihamlaðra sé tryggt við alla mannvirkjagerð hjá Akureyrarbæ.
5. Akureyri í sókn
Bæjarstjórn Akureyrar þarf að stunda virka hagsmunagæslu fyrir bæinn, íbúa hans og atvinnulíf. Samfylkingin á Akureyri setur hagsmuni bæjarbúa í fyrsta sætið í allri sinni nálgun.
- Mörkum bænum atvinnu- og vaxtarstefnu til framtíðar sem tekur mið af breyttum heimi, tækniþróun og nýsköpun.
- Stöndum vörð um millilandaflug til Akureyrar, erjumst fyrir áframhaldandi uppbyggingu flugvallarins og höldum áfram að styðja við markaðssetningu flugvallarins til erlendra og innlendra flugfélaga.
- Auðveldum rekstur og uppbyggingu á Akureyri með einum tengipunkti sveitarfélagsins við atvinnulífið á Akureyri. Setjum á fót Atvinnulífsstofu sem verður sá tengipunktur og innleiðir aðgerðir atvinnu- og vaxtarstefnunnar.
- Greiðum fyrir fjölbreyttari atvinnutækifærum á svæðinu og aðstöðu til fjarvinnu - fáum fólkið okkar aftur heim eftir að það hefur náð sér í sérhæfingu og reynslu.
- Hlúum að grunnatvinnugreinum okkar, lækkum fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði og berjumst fyrir styttri leiðum til og frá Akureyri.
- Tryggjum að framlög til menningarmála fylgi verðlagi og hefjumst handa við að móta nýja menningarstefnu. Sú síðasta féll úr gildi árið 2018.
- Stöndum vörð um Sjúkrahúsið á Akureyri, hjúkrunarheimilin og aðrar mikilvægar heilbrigðisstofnanir á Akureyri.
- Tryggjum stöðugt framboð atvinnulóða með fullnægjandi innviðum.
- Eflum Akureyri sem heilsársáfangastað, bætum aðgengi að perlum bæjarins yfir vetrartímann, s.s. Lystigarðinum. Bætum upplifun ferðamanna og fáum þá til að staldra lengur við hjá okkur.