Sterkari saman
Kosningastefna Samfylkingarinnar í Suðurnesjabær 2026 - 2030
1. Tökum ábyrgar ákvarðanir
Ábyrgð kjörinna fulltrúa er mikil og mikilvægt að þeir sinni þeirri eftirfylgni og verkum sem þeir eru kosnir til að fylgja eftir og framkvæma. Bæjarstjórn starfar í umboði íbúa Suðurnesjabæjar og ber ábyrgð á því að þeir tekjustofnar sem til umráða eru séu nýttir með sem bestum hætti til lögbundinna verkefna og annarra sem ákveðið er hverju sinni með hag íbúa að leiðarljósi.
Bæjarstjóri og æðstu embættismenn hafa svo það hlutverk að koma þeim ákvörðunum sem teknar eru hverju sinni í framkvæmd í samráði við aðra starfsmenn. Í Suðurnesjabæ á að ríkja ábyrg, gagnsæ og skilvirk stjórnsýsla með skýra framtíðarsýn.
Við ætlum að:
- Setja skýra langtímastefnu fyrir sterkt og stöðugt sveitarfélag í sókn.
- Vinna fjárhagsáætlun í raunverulegu samráði við íbúa.
- Lækka heildargjöld/álögur á íbúa.
- Forgangsraða fjármunum út frá þörfum.
- Auka gagnsæi og upplýsingagjöf til íbúa, t.d. með opnu bókhaldi.
- Halda reglulega opna íbúafundi.
- Ráða í stöðu bæjarstjóra.
- Einfalda og efla nefndakerfið.
- Nýta fjárhagslegan styrk sveitarfélagsins til uppbyggingar.
- Tryggja að Suðurnesjabær sé góður og eftirsóttur vinnustaður.
- Setja kraft í stafræna vegferð Suðurnesjabæjar.
2. Skipulagsmál eru samfélagsmál
Aðalskipulagið okkar er skipulagsáætlun sem nær til alls lands í Suðurnesjabæ, eða um 84 km2 , og segir til um framtíðar landnotkun og fyrirkomulag byggðar. Líf íbúa er þar með rammað inn í aðalskipulag hverju sinni og teknar eru m.a. ákvarðanir um hvar íþróttasvæði byggjast upp, nærþjónusta, atvinnusvæði og íbúabyggð.
Það er íbúum mikilvægt að Suðurnesjabær byggist upp með góðu skipulagi, að hér sé snyrtilegt og að jafnvægi ríki milli byggðar, atvinnu og náttúru. Suðurnesjabær á að vera aðlaðandi sveitarfélag þar sem okkur íbúum líður vel.
Við ætlum að:
- Endurskoða Aðalskipulag Suðurnesjabæjar með það að markmiði að gefa íbúum tækifæri, eftir átta ára reynslutíma, til að hafa áhrif á framtíðarsýn og forgangsröðun.
- Endurskoða deiliskipulag á lykilsvæðum, m.a. á báðum hafnarsvæðum.
- Móta heildstæða sýn á svæðið milli kjarnanna með skýru skipulagi fyrir atvinnu, íþróttir og útivist.
- Tryggja nægt framboð fjölbreyttra lóða.
- Fegra Suðurnesjabæ með markvissri uppbyggingu
- grænna svæða og almenningsrýma, m.a. með fjölgun bekkja, ruslatunna og aukinni gróðursetningu.
- Setja meiri kraft í gatna- og stígagerð og efla eftirfylgni með framkvæmdum.
- Setja í forgang samtal við Vegagerðina um breikkun á Garðskagavegi, á milli Garðs og Sandgerðis.
- Bæta aðgengi almennings að kirkjum sveitarfélagsins, m.a. með því að bæta verulega aðgengi að Hvalsneskirkju og Sandgerðiskirkju og klára framkvæmdir við Útskálahús.
- Tryggja að göngu -, hjóla- og akstursleiðir séu með besta móti og aðgengilegar allan ársins hring.
- Auka umferðaröryggi við skóla með bættri lýsingu, gangbrautum og skýrara skipulagi sleppisvæða.
- Vinna að bættum almenningssamgöngum í samráði við hagsmunaaðila, þ.m.t. Vegagerðina, íþróttafélög, atvinnurekendur og íbúa.
- Efla núverandi leik- og útivistarsvæði og fjölga leikvöllum með fjölbreyttum leiktækjum, ásamt því að tryggja öryggi almennings með bættri lýsingu og góðum aðbúnaði.
- Setja upp afgirt og öruggt svæði fyrir hunda og góða aðstöðu fyrir hundaeigendur.
- Halda áfram að þrýsta á aukið fjármagn í sjóvarnir í Suðurnesjabæ.
- Endurvekja umhverfisviðurkenningar og hvetja íbúa til að fegra í sínu nærumhverfi.
3. Líflegt samfélag
Suðurnesjabær er einstakur staður með mikla víðáttu, er umvafinn hafinu og fallegri strandlengju sem fáir geta státað sig af. Sumir myndu segja að hér fáum við notið fallegasta sólarlagsins og norðurljósa.
Í Suðurnesjabæ er öflugt starf á sviði ferða-, safna- og menningarmála sem mikilvægt er að styðja við og efla enn frekar því hér eru mörg tækifæri.
Við ætlum að:
- Gera Garðskaga að lykiláfangastað fyrir ferðamenn, bæði innlenda og erlenda.
- Skapa aðstöðu til að njóta hafnar- og strandlífs.
- Glæða gömlu höfnina í Garði lífi þannig að hún nýtist sem öruggt útivistarsvæði.
- Efla Menningarsjóð Suðurnesjabæjar.
- Skapa tækifæri fyrir enn fjölbreyttari menningarviðburði en fyrir eru.
- Markaðssetja Suðurnesjabæ sem áfangastað með markvissri kynningu, samstarfi við ferðaþjónustuaðila og skýrri ímynd sveitarfélagsins.
4. Samfélag fyrir alla
Í öflugu velferðarsamfélagi fá öll tækifæri til að lifa sómasamlegu lífi og jöfn tækifæri til menntunar, íþrótta- og tómstundaiðkunar og þátttöku í samfélaginu.
Við viljum að öll fái jöfn tækifæri í Suðurnesjabæ – á öllum æviskeiðum.
Við ætlum að:
- Tryggja að Suðurnesjabær verði framúrskarandi velferðarsamfélag.
- Standa vörð um skólasamfélagið, leik-, grunn- og tónlistarskóla, og efla stuðning og menntun starfsfólks.
- Tryggja að engin fjölskylda greiði meira en 50 þúsund krónur á mánuði fyrir fulla leikskólavistun og 100% systkinaafslátt.
- Tryggja að Suðurnesjabær verði til fyrirmyndar er kemur að þjónustu fyrir fatlaða og þá sem þurfa á sértækri þjónustu að halda.
- Bæta þjónustu fyrir þá sem þurfa sértæka aðstoð, bæði tímabundna og til lengri tíma.
- Tryggja úrræði fyrir ungt fólk með fötlun og gefa þeim tækifæri á að búa íheimabyggð.
- Efla þjónustu við eldri borgara og tryggja þeim búsetu í heimabyggð.
- Efla félagsstarf eldri borgara í Miðhúsum og Auðarstofu og skapa svigrúm fyrir nýjungar, meðal annars með því að skoða möguleika á frístundastyrkjum.
- Vinna eftir stefnu eldri borgara og aðgerðaráætlun sem henni fylgir.
- Styðja betur við nýja íbúa og bæta upplýsingaflæði til þeirra.
- Endurskoða jafnréttisstefnu- og jafnréttisáætlun Suðurnesjabæjar og horfa á jafnréttismál í víðara samhengi.
5. Heilsueflandi samfélag
Suðurnesjabær er heilsueflandi samfélag sem þýðir að taka þarf mið af heilsu og vellíðan í allri stefnumótun. Í Suðurnesjabæ eru mörg tækifæri til að gera gott íþrótta- og tómstundastarf enn betra fyrir alla, unga og þá sem eldri eru.
Við ætlum að:
- Láta gervigrasvöll verða að veruleika og hefja vinnu að uppbyggingu íþróttamannvirkja framtíðarinnar.
- Efla samstarf við íþróttafélög og félagasamtök.
- Bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar og nýta mannvirki sem fyrir eru sem best m.a. að rýmka opnunartíma sundlauga.
- Endurskoða frístundastyrkjakerfið á þann hátt að það ýti undir þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi með jöfnuð að leiðarljósi.
- Efla starf fyrir eldri borgara í íþróttum og tómstundum.
- Ráða fagfólk til að styðja við starfsemi íþróttafélaga.
- Skapa umhverfi sem gefur börnum og ungmennum tækifæri á að iðka fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf.
- Skapa skýra og sanngjarna samninga við félög í Suðurnesjabæ.
- Finna hvata til að bæta nýtingu íþróttamannvirkja fyrir almenning, þ.m.t. sundlaugar.
6. Öflugt atvinnulíf
Suðurnesjabær býr yfir kjörsvæðum til atvinnuuppbyggingar sem eru í nálægð við höfuðborgarsvæðið, bestu flugsamgöngur landsins og góða fiskihöfn. Við ætlum að skapa öflugt og fjölbreytt atvinnulíf sem styður við vöxt samfélagsins og tryggir störf til framtíðar.
Við ætlum að:
- Móta atvinnustefnu fyrir Suðurnesjabæ með það að leiðarljósi að efla nýsköpun og styðja við lítil og meðalstór fyrirtæki.
- Hámarka þau tækifæri sem búa í K64 þróunaráætluninni fyrir Suðurnesjabæ og hafa áhrif á þá þróun.
- Setja skýra þjónustu- og framkvæmdastefnu fyrir Sandgerðishöfn og gera hana samkeppnishæfari.