Sterkt samfélag-skýr stefna

Kosningastefna Samfylkingarinnar í Reykhólahreppi 2026 - 2030

Samfylkingin og óháðir í Reykhólahreppi hafa sett saman eftirfarandi markmið næsta kjörtímabils.

Stefnan er jafnframt að fylgja þeirri fjárhagsáætlun sem er í gildi þar sem áætlaðir eru fjármunir í sorpsvæði, vatnsmál, byggingu íbúða á Barmahlíð, ljósleiðara og áframhaldandi viðhald fasteigna.

1. Fólk, velferð og samfélag

Fjölskyldan í forgrunni

Öflugt skólastarf er hornsteinn hvers samfélags og við viljum tryggja það með því að:

  • Tryggja mönnun í leik- og grunnskóla – með því að bæta vinnuaðstæður og styðja við starfsfólk sem fer í nám.
  • Bæta skólahúsnæðið – Höldum áfram að bæta skólahúsnæðið þannig að það nýtist til fulls.
  • Stórauka stoðþjónustu leik- og grunnskólans – með því að ráða í stöðu deildarstjóra stoðþjónustu og endurskoða samninga um sérfræðiþjónustu. Endurskoða samninga um félagsþjónustu út frá þjónustu við börn og foreldra.
  • Endurskoða skólastefnu – Með aðkomu kennara, nemenda, foreldra og nærsamfélags fæst samstaða og skilvirkni í skólastarfinu.
  • Taka þátt í samvinnu um skólastarf – Vinna að stofnun skólaskrifstofu með sveitarfélögunum á Vestfjörðum.

Tómstundir og tengsl

„Pláss fyrir alla – allt árið“

Við viljum efla tómstundastarf og félagslega heilsu fyrir alla með því að:

  • Tryggja samfellt tómstundastarf frá 6-18 – með því að klára húsnæði fyrir frístundastarf á neðri hæð skólans og nýta húsnæði betur og tryggja opnun allt árið.
  • Auka fjölbreytni í tómstunda- og félagsstarfi – með því að gera skýra samstarfssamninga við félagasamtök eins og Aftureldingu, Heimamenn o.fl.
  • Efla ungmennaráð – Gera með ungmennaráði skýra ungmennastefnu sveitarfélagsins og tryggja raunverulega aðkomu þeirra að ákvörðunum.
  • Auka starfsemi fyrir 16+ – með því að fjölga svæðum sem þau geta nýtt, t.d. félagsmiðstöð og sundlaug, og styrkja félagasamtök til að bjóða upp á starfsemi fyrir þau. Þessi mál séu unnin með ungmennaráði.
  • Auka frístundastyrki – Skoða hvort hægt sé að hækka frístundastyrki til að jafna stöðu barna til tómstunda.
  • Styðja við fagmennsku – Með skýrum gæðaviðmiðum.

Þjónusta við eldri borgara

„Hlúum að fólkinu sem byggði landið.“

Við teljum það skyldu okkar að tryggja öryggi og mannvirðingu allra á efri árum með því að:

  • Standa vörð um Barmahlíð – með því að bæta viðhald utandyra sem innandyra svo húsnæðið nýtist sem best.
  • Auka félagsstarf eldri borgara – Með þjónustusamningum við félagasamtök
  • Öflugri félagsþjónusta – Með endurskoðun samninga með það að markmiðið að hér verði mun öflugri félags- og velferðarþjónusta.
  • Tengiliður eldri borgara – Að það sé einn staður þar sem eldri borgarar geta fengið upplýsingar og sótt um þjónustu. Þetta yrði hluti af samningum um félags- og velferðarþjónustu.
  • Útbúa aðstöðu fyrir félagsstarf eldri borgara – kostnaðargreina og finna leið til að finna félagsstarfi aldraðra hentugan stað.

Mannlíf og menning

„Fjörugt mannlíf er sameiginleg ákvörðun okkar allra.“

Fjörugt mannlíf og menning er forsenda þess að hægt sé að eiga ánægjulegt líf í sveitarfélaginu. Við viljum styðja við það með því að:

  • Efla félagasamtök – Með skýrum samstarfssamningum með það að markmiði að auka afþreyingu.
  • Styrkja inngildingu – Með þátttöku í verkefnum eins og Gefum íslensku séns
  • Auka aðgengi – Með því að fara yfir aðgengismál og setja þau í forgang í fjárhagsáætlun næsta árs.
  • Finna samkomustað – Nauðsynlegt er að finna menningarlífi samastað og skoða hvaða möguleikar eru í að nýta betur húsnæði.

Mannauður

“Ánægt starfsfólk, góð þjónusta – kraftmikið samfélag“

Eitt af mikilvægustu verkefnum sveitarfélaga er að laða að og halda í mannauðinn en líka að styrkja og styðja við hann. Þetta gerum við með því að:

  • Tryggja raunhæft álag og skýra verkaskiptingu.
  • Stuðla að faglegu starfsumhverfi– meðð skýrum starfslýsingum og innleiðingu á skipuriti.
  • Styðja starfsfólk í námi–- Með vinnu við endurmenntunarstefnu sveitarfélagsins.
  • Styðja stjórnendur – Skapa traust á milli stjórnenda og stjórnsýslu með skýrari starfslýsingum og virkri upplýsingagjöf.
  • Laða að og halda í fagfólk – Með því að minnka faglega einangrun með samstarfi við önnur sveitarfélög.
Höfnin í Flatey

2.  Uppbygging, atvinnulíf og ábyrg stjórnsýsla

Framtíð fyrir fólk og fyrirtæki

„Einföldum regluverk og aukum samstarf“

Við viljum að fólk velji að búa í Reykhólahreppi og byggja upp samfélagið með okkur með því að:

  • Vinna út frá einföldun regluverks – Einn viðkomustaður fyrir fyrirtæki sem auðveldar frumkvöðlum og nýjum fyrirtækjum að hefja starfsemi
  • Fara í kynningarherferð – Fara í sameiginlega kynningarherferð með atvinnulífi
  • Efla samvinnu við fyrirtækin á svæðinu – þannig opnast ný tækifæri. Nýta tækifæri í Þörungamiðstöð Íslands
  • Styðja landbúnað – með öflugri hagsmunagæslu gagnvart ríki, halda áfram með dreifbýlisnefnd og gera aðgerðaráætlun í samráði við bændur um eflingu landbúnaðar á svæðinu.
  • Fjölga iðnmenntuðum á svæðinu – gera samstarfssamninga við skóla sem bjóða upp á iðnnám um verknám á svæðinu í samstarfi við fyrirtæki.
  • Nýta auðlindir af ábyrgð – með því að tryggja fullnýtingu heita vatnsins, halda áfram með áætlanir um kalda vatnið.

Ábyrgur rekstur og stjórnsýsla

„Skýr stefna, aukið gagnsæi og raunhæf skref.“

Við teljum að skýr stefna, gagnsæi og raunhæf skref séu grunnur þess að önnur áform geti orðið að veruleika. Við viljum ná því með því að:

  • Setja skýran fjárhagsramma fyrir hvern málaflokk – til að koma í veg fyrir að kostnaður aukist óvænt og auka aðhald stjórnenda.
  • Forgangsraða verkefnum árlega – Forgangsraða í samvinnu við stofnanir og íbúa.
  • Vinna markvisst í viðhaldi fasteigna og umhverfis – til að vinna niður innviðaskuld og tryggja öryggi við störf og leik.
  • Auka gagnsæi í ákvarðanatöku–-meðð því að birta bakgrunnsgögn með fundargerðum ogfréttumr eftirsveitarstjórnarfundii.
  • Einfalda stjórnsýslu og boðleiðir–-meðð því að halda áfram innleiðingu skipurits, yfirfara starfslýsingar og skýra verklag.
  • Tryggja hagsmuni sveitarfélagsins–- Í breyttu umhverfi íslenskra sveitarfélaga þar sem samvinna og sameiningar verði gerðar á forsendum sveitarfélagsins með hag þess í fyrirgrunni.
  • Halda áfram–- Tryggja að verkefni sem nú þegar eru hafin falli ekki niður heldur vinnist áfram með því að taka stöðuna á öllum verkefnum í fjárhagsáætlun og viðhaldsáætlun í upphafi kjörtímabils.

Almannavarnir

Í víðfeðmu sveitarfélagi þarf að tryggja að viðbragðsaðilar hafi getu til að tryggja öryggi íbúa. Það eflum við með því að:

  • Byggja nýtt almannavarnarhús – Kostnaðarmeta og hefja undirbúning og vinnu við nýtt almannavarnarhús undir slökkvilið og fleiri viðbragðsaðila.
  • Samstarf við ríkið – Byggja upp samstarf við HVE, lögreglu og ríkið með það að markmiði að efla almannavarnir og fjölga ríkisstörfum á svæðinu.
  • Vinna langtímaáætlun um öryggi og viðbragð – Nýta niðurstöður úr C10-verkefninu í samstarfi við ríkið og viðbragðsaðila á svæðinu um langtímaáætlun um almannavarnir á svæðinu.
  • Huga sérstaklega að jaðarsvæðum – nota lyfjakistur og bráðabúnað bæði gagnvart slysum og eldsvoða, t.d. í Flatey.

Skipulag og byggðakjarnar

Skipulagsmál eru helstu stefnumarkandi aðgerðir sveitarfélaga og þar viljum við leggja áherslu á:

  • Deiliskipulag á Reykhólum- Vinna deiliskipulag á Reykhólum.
  • Deiliskipulag í Flatey – Uppfæra deiliskipulag þannig að Flatey verði íbúabyggð en tryggt sé að skilmálar um verndarsvæði í byggð verndi ásýnd og náttúru.
  • Uppbygging í Króksfjarðarnesi – Fylgja eftir breytingu á skipulagi þannig að hægt sé að byggja upp mikilvæga innviði.

Flatey

„Flatey er hluti af samfélaginu ekki jaðar samfélagsins“

Mikilvægt er að hlúa sérstaklega að Flatey og tryggja byggð þar. Við viljum leggja áherslu á:

  • Vatnsmálin – Við viljum halda áfram að vinna með Flateyjarveitum að því að finna nýtanlegt vatn.
  • Halda árlega íbúafundi – Við viljum halda áfram að halda árlega íbúafundi og eiga gott samstarf við Framfarafélag Flateyjar.
  • Ferjusiglingar – Öflug hagsmunagæsla um ferjusiglingar í Breiðafirði í samstarfi við sveitarfélögin við Breiðafjörð þar sem það er grundvöllur þess að hægt sé að halda við byggð á svæðinu.
  • Smábátahöfn – Halda samtali við ríkið varðandi smábátahöfn áfram með öflugri hagsmunagæslu.
Samfylkingin birtir auglýsingar á samfélagsmiðlum og í gegnum auglýsingamiðlara til þess að koma skilaboðum sínum á framfæri til þeirra sem flokkurinn telur gagn hafa að. Er það gert með því að óska eftir því að þessir aðilar birti auglýsingarnar þeim notendum sínum sem uppfylla ákveðin skilyrði. Samfylkingin fær aldrei neinar persónuupplýsingar til sín um notendur. Breyturnar sem unnið er með eru aldur, kyn og búseta. Nánari upplýsingar um persónuverndarstefnu Samfylkingarinnar.