Uppstilling á Akureyri

Viltu hafa áhrifa á hvernig bænum okkar er stjórnað?

Uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar á Akureyri óskar eftir ábendingum um mögulega frambjóðendur til setu á framboðslista flokksins í bæjarstjórnarkosningunum í vor.

Jafnframt eru þeir sem hafa áhuga á að gefa kost á sér hvattir til að hafa samband. Allar ábendingar og framboð verða meðhöndluð af fyllsta trúnaði.

📞 Vinsamlegast hafið samband í síðasta lagi 5. febrúar við
Unnar Jónsson, sími 660 9032,
eða sendið tölvupóst á unnar@live.com.

Kær kveðja,
uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar á Akureyri