Þróunarmál í brennidepli á næsta fundi málefnahóps um alþjóðamál
Þriðji fundur málefnhóps um alþjóðamál verður í hádeginu fimmtudaginn, 21. febrúar í húsnæði Samfylkingarinnar, Hallveigarstíg 1. Fundurinn verður að þessu sinni tileinkaður umræðum um þróunarstarf Íslendinga og mun Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, greina frá nýlegri ferð sinni til Malaví og sýn sinni á málaflokkinn.