Vöfflukaffi verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar á sunnudag

Vöfflukaffi sunnudaginn 3. mars á Hallveigarstíg 1, kl. 14 – 16. 
Gestur fundarins er Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM og fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar. 

Þér og þínum er boðið í vöfflukaffi á sunnudaginn kemur á skrifstofu flokksins Hallveigarstíg 1.
Stjórn Verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar stendur fyrir boðinu að þessu sinni og mun fá til sín fólk úr verkalýðshreyfingunni til skrafs við okkur um stöðu mála auk þess sem kjörnir fulltrúar flokksins eru sérstaklega hvattir til að mæta.

Þetta er fyrsta vöfflukaffið á þessu ári, en ætlunin er að vera með vöfflukkaffi fyrsta sunnudag í mánuði og verður kaffið auglýst hverju sinni.

Hlökkum til að sjá ykkur! 

Stjórn verkalýðsmálaráðs