Fundur með formanni Bændasamtakanna og efnahagsnefndar Samfylkingarinnar
Formaður Bændasamtakanna mun koma á fund málefnanefndar Samfylkingarinnar um efnhagsmál í hádeginu þriðjudaginn 24. september og spjalla um stöðu stöðu landbúnaðarins. Þarna gefst gott tækifæri til upplýstrar umræðu um landbúnaðarmál. Fundurinn verður haldinn í fundarsal Samfylkingarinnar á Hallveigarstíg 1.
Guðrún Sigríður Tryggvadóttir, bóndi í Svartárkoti var kjörin formaður Bændasamtakanna á síðasta Búnaðarþingi, fyrst kvenna.