Taktu daginn frá! Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar 19. október

Flokksstjórnarfundur verður haldinn laugardaginn 19. október í Austurbæ, Snorrabraut 37.
Flokksstjórnarfundir eru opnir öllum flokksfélögum og stuðningsmönnum, við hvetjum alla áhugasama til að mæta og taka virkan þátt í flokksstarfinu.
Á fundinum beinum við augunum til framtíðar og því hvernig Samfylkingin getur verið leiðandi afl í þeim verkefnum sem samfélagið stendur frammi fyrir þegar kemur að loftslagsmálum og samvinnu við aðrar þjóðir í þessum efnum.
Nánari dagskrá auglýst þegar nær dregur.
Við hlökkum til að sjá þig!