Gegn kvótabraski, skattaskjólum og spillingu!

Ræðum leiðir gegn óábyrgum viðskiptaháttum, skattaskjólum og ægivaldi einstakra manna yfir sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar.
Hvað á að gerast þegar fyrirtæki sem hafa aðgang að sameigilegri auðlind þjóðarinnar standa ekki undir trausti?
Hvernig aukum við gegnsæi í viðskiptum?
Er hægt að uppræta skattaskjól?
Á fundinum verða meðal annars Oddný Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, Helga Vala Helgadóttir og Magnús Árni Skjöld, deildarforseti félagsvísinda- og lagadeildar Háskólans á Bifröst og formaður alþjóðanefndar Samfylkingarinnar.
Fundarstjóri verður Eva H. Baldursdóttir, lögfræðingur og formaður umhverfisnefndar Samfylkingarinnar.
Fundurinn verður haldinn í hliðarsal í Kaffi Læk og honum verður streymt á Facebooksíðu Samfylkingarinnar.
Fundurinn er öllum opinn. Við hlökkum til að sjá ykkur!