Sóltún 26, 105 Reykjavík

Vinnufundur efnahagsnefndar

Vinnufundur efnahagsnefndar verður haldinn næsta miðvikudag 26. ágúst kl. 17

Nú líður að landsfundi en hann hefur verið boðaður 6. - 7. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica. Málefnanefndir skila af sér tillögum til framkvæmdastjórnar 27. ágúst, því er tilvalið að taka þátt í vinnufundi nefndarinnar áður en tillögunum er skilað inn. 

Vinsamlega skráið mætingu á fundinn svo hægt sé að meta fjölda og gera ráðstafanir vegna fjarlægðatakmarkanna.
Boðið verður upp á að taka þátt á fjarfundi á Zoom. Þeir sem eru skráðir á fundinn fá sendan link á fjarfundinn. 

Við hvetjum ykkur til að mæta á þennan vinnufund í nýju húsnæði flokksins í Sóltúni 26, fyrstu hæð. Gengið er inn norðanmegin. 

Skráning á fundinn hér: https://forms.gle/hnwkGGYdsTaBfzqy9