Fyrsta skólastigið. Gæsluvöllur eða menntastofnun?

Málefnanefnd menntahóps Samfylkingarinnar býður öllum á opinn rafrænann umræðufund um fyrsta skólastig barnsins.
Gestir fundarins:
- Leikskóli í þágu barna eða atvinnulífs?
Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson, deildarstjóri á leikskólanum Hvammi. - Hvers vegna velja leikskólakennarar að kenna í grunnskóla fremur en í leikskóla?
Kristín Dýrfjörð, dósent á Hug- og félagsvísindasviði Háskólans á Akureyri. - Áhrif styttingar vinnuvikunnar og fleiri stórra breytinga á menntunarhlutverk leikskóla.
Marta Dögg Sigurðardóttir, leikskólakennari í Hafnarfirði. - Stefna og aðgerðir Reykjavíkur í leikskólamálum.
Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur
Fundarstjóri er Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, varaþingmaður og formaður menntamálanefndar Samfylkingarinnar, og mun hún fara yfir hlutverk fyrsta skólastigsins úr drögum að nýrri menntastefnu Samfylkingarinnar.