Orðræðan í stjórnmálum og áhrif hennar

Samfylkingarfélagið í Reykjavík stendur fyrir fundi þar sem fjallað verður aukna hörku í orðræðunni í stjórnmálum og hvaða áhrif hún hefur á stjórnmálafólk og kjósendur. Margt fólk upplifir sig aðþrengt á tímum COVID19 og sumt hvert í fjölþættum skilningi svo sem vegna atvinnuleysis, skorti á samskiptum, félagslegrar einangrunar og heilsuleysis. Hin pólitíska orðræða er óvægnari en áður sem hefur áhrif á bæði stjórnmálafólk og kjósendur. Það hefur ákveðin pólarisering átt sér stað í stjórnmálum á tímum COVID19 sem getur verið þáttur í þessari auknu hörku. Stjórnmálamenn hafa brotið sóttvarnarreglur bæði íslenskir sem erlendi. Þær gjörðir hafa haft óneitanleg áhrif á orðræðuna og kjósendur. Er hægt að lýsa yfir vantrausti á stjórnmálamenn? Virkar það? Eiga þeir að segja af sér? Geta þeir aftur áunnið sér traust?

Sigfús Ómar Höskuldsson varaformaður SffR opnar fundinn og Ellen Calmon forman SffR stýrir umræðum.

Gestir fundarins eru:

  • Henry Alexander Henrysson heimspekingur: Traust kjósenda til kjörinna fulltrúa.
  • Hulda Þórisdóttir doktor í félasglegri sálfræði: Hvernig hafa gjörðir stjórnmálafólks áhrif á hegðun kjósenda á tímum þrenginga?
  • Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur: Um vantrauststillögu - gildi hennar, gagn eða ógagn?
  • Sigríður Ingibjörg Ingadóttir fyrrverandi þingkona Samfylkingarinna: Frá sjónarhóli stjórnmálakonunnar.

https://zoom.us/j/95734343714