Zoom

Aðalfundur Samfylkingarinnar í Kópavogi, auk húsfélagsins

Í þetta skipti verður um sameiginlegan aðalfund fyrir bæði Samfylkinginu í Kópavogi og húsfélag Samfylkingarinnar Hlíðarsmára 9. Verður fundurinn haldinn rafrænn og hérna er linkur á fundinn: https://zoom.us/j/94060281322

Samkvæmt lið 4.7 í samþykktum Samfylkingarinnar í Kópavogi skal aðalfundur hafa eftirtalda fasta liði:
1. Kjör fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar og nefnda fyrir liðið starfsár eftir því sem við á
3. Áritaðir reikningar fyrra árs lagðir fram til umræðu og samþykktar
4. Breytingar á samþykktum
5. Kjör stjórnar
6. Kjör félagslegra skoðunarmanna reikninga
7. Kjör uppstillinganefndar
8. Kjör í nefndir og ráð á vegum félagsins
9. Önnur mál.

Hér má nálgast samþykktir félagsins.

Viljir þú leggja fram tillögu fyrir aðalfund eða gefa kost á þér til stjórnarsetu má senda póst á [email protected].

Allir félagsmenn Samfylkingarinnar í Kópavogi hafa rétt til fundarsetu á báðum þessum fundum.