Aðalfundur kjördæmisráðs í Norðvesturkjördæmi

Stjórn kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi boðar til aðalfundar mánudaginn 10. maí 2021 kl.19 á Zoom.
Tengjast fundi hér.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi til alþingiskosninga lagður fram til staðfestingar, en kosið var um þrjú efstu sætin á kjördæmisþingi sem fram fór 27. mars sl.
Ekki er þörf á að kjósa nýja stjórn, þar sem kosið var í öll embætti til tveggja ára á aðalfundi í september 2020 í samræmi við lög kjördæmisráðs.
Tillögur að lagabreytingum þurfa að berast stjórn kjördæmisráðs 10 dögum fyrir boðaðan aðalfund, vala@simenntun.is.
Dagskrá
- Setning fundar.
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Ávarp þingmanns kjördæmisins, Guðjóns S. Brjánssonar.
- Skýrsla stjórnar, Guðrún Vala Elísdóttir formaður.
- Ársreikningur lagður fram.
- Lagabreytingar, ef einhverjar hafa borist.
- Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi til alþingiskosninga lagður fram til staðfestingar.
- Yfirlit um starfsemi aðildarfélaga.
- Samþykkt stjórnmálaályktana.
- Ávarp oddvita listans, Valgarðs Líndal Jónssonar.