Kaffispjall með frambjóðendum í Kraganum - Fimmtudagskvöld í Hafnarfirði

Öll fimmtudagskvöld í ágúst mun Samfylkingin í Kraganum standa fyrir ólíkum viðburðum í húsnæði Samfylkingarinnar í Hafnarfirði við Strandgötu þar í bæ að teknu tilliti til samkomutakmarkanna.
Fyrsta fimmtudagskvöldið munu þrír efstu frambjóðendur til Alþingis í komandi kosningum, þau Þórunn Sveinbjarnardóttir, Guðmundur Andri Thorsson og Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, spjalla við gesti og gangandi.
Ekki verður um formlegan fund að ræða heldur vettvang fyrir flokksfólk, jafnt sem almenna kjósendur, til að líta inn, spyrja spurninga, spjalla eða koma ábendingum beint til forystufólksins okkar.
Sjáumst öll á fimmtudagskvöld.
Heitt á könnunni og spritt fyrir öll.