Aðalbakarí á Siglufirði

Kaffi með Loga Einarssyni og Kristjáni Möller

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, verður á Siglufirði með Kristjáni Möller og er þér boðið í kaffi til þeirra í Aðalbakaríi á þiðjudaginn 14. sept. kl. 16:30.

Við viljum hitta þig og ræða stöðuna í samfélaginu, hvernig Samfylkingin hyggst búa þér, þinni fjölskyldu og komandi kynslóðum betra líf. Einnig förum við yfir helstu málin sem brenna á Siglfirðingum og kjördæminu, hvað liggur þér á hjarta?

Ekki láta þetta fram hjá þér fara!