Egilsbúð - Neskaupstað

Spjall við Viðar

Spjall við Viðar Eggerts og Eydísi Ásbjörnsdóttur í Egilsbúð milli kl. 10-12, Miðvikudaginn 22. september - þar sem sérstaklega verða rædd málefni eldri borgara.

Viðar hefur barist ötullega að málefnum eldri borgara síðastliðin ár, meðal annars sem verkefnastjóri fyrir Félag eldri borgara í Reykjavík, Landssamband eldri borgara og Gráa herinn.

Eldra fólk og öryrkjar hafa dregist langt aftur úr í lífskjörum á síðustu árum og hvergi eru skerðingar í almannatryggingum jafn miklar en á Íslandi. Þessu verður að breyta!
Samfylkingin mun stíga markviss skref strax í upphafi kjörtímabilsins.

Verið öll velkomin - heitt á könnunni og með því.