Aðalfundur Samfylkingarfélagsins á Akranesi

Stjórn Samfylkingarfélagsins á Akranesi boðar til aðalfundar fimmtudaginn 21. okt. kl. 20:00. Aðalfundurinn verður haldinn í húsnæði félagsins að Stillholti 16 - 18, Akranes.
Dagskrá aðalfundar:
- Skýrsla stjórnar
- Reikningar félagsins fyrir næstliðið ár lagðir fram
- Breytingar á lögum félagsins
- Kosning formanns stjórnar og 4 aðalmanna
- Kosning skoðunarmanns reikninga
- Umræður um aðferð um val á lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar
- Önnur mál