Zoom

Frambjóðendakynning í Reykjavík

Fulltrúaráð Samfylkingarfélaganna boðar til kynningarfundar fyrir alla frambjóðendur í flokksvalinu sem fram fer helgina 12. - 13. febrúar.

Fundurinn verður haldinn mánudagskvöldið 31. janúar kl 20:00. Fundurinn verður rafrænn að þessu sinni.

https://us06web.zoom.us/j/81213547931?pwd=aHkwS2xXQzBLRkJKZThNKzUySUxnZz09

Meeting ID: 812 1354 7931

Passcode: 1234

Umgjörðin verður þannig að formaður FSR, Ásta Guðrún Helgadóttir opnar fundinn. Því næst mun hver og einn frambjóðandinn fá þrjár mínútur til kynningar á sér sínum málefnum og áherslum, komist þeir sem frambjóðendur á lista hjá Samfylkingunni fyrir komandi Borgarstjórnarkosningar sem fara fram þann 14. maí næstkomandi.

Farið verður eftir þeirri sömu röð og frambjóðendur voru kynntir af kjörstjórn.

Fundarstjóri verður Inga Auðbjörg Straumland.

Hér er að finna kynningar á frambjóðendum á heimasíðu Samfylkingarinnar.