Sunnuhlíð 12

Aðalfundur Samfylkingarinnar á Akureyri

Samfylkingin,

Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 24. febrúar kl. 20 í Sunnuhlíð 12, 2. hæð. 
Venjuleg aðalfundarstörf og kosning í stjórn félagsins. 

Félagar sem hafa áhuga á að sitja í stjórn eða varastjórn félagsins hafið samband með því að senda á tölvupóst á formann kjörnefndar Heimir Haraldsson ([email protected]) fyrir fimmtudaginn 24. febrúar n.k. 


Að loknum aðalfundi verður haldinn félagsfundur þar sem uppstillingarnefnd kynnir tillögu sína að lista Samfylkingarinnar fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor.  


Minni í leiðinni á Laugardagskaffið sem er í Sunnuhlíð alla laugardagsmorgna frá kl. 10-12. Þar er öllum velkomið að mæta og ræða málin yfir kaffibolla. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar á Akureyri mæta oftast og ef Logi Már formaður flokksins er í bænum þá kíkir hann við. 


Sjáumst sem flest í Sunnuhlíð á aðalfundinum og fögnum öflugum lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor.