Óskað eftir framboðum og tilnefningum á Akranesi

Nú eru bæjarstjórnarkosningar í nánd og við erum farin að huga að framboðsmálum og leitum eftir áhugasömu fólki á öllum aldri til að skipa lista Samfylkingarinnar á Akranesi.
Ef þið hafið áhuga á því að fara í framboð, sækist eftir ákveðnu sæti á listanum, eða hafið hugmyndir að fólki sem þið viljið sjá í fararbroddi fyrir Samfylkinguna á Akranesi, þá biðjum við ykkur endilega að setja ykkur í samband við okkur fyrir 10. febrúar n.k.
Sigrún Ríkharðsdóttir sigrikh@gmail.com
Björn Guðmundsson bg56@aknet.is
Guðjón V. Guðjónsson gudjonvg59@gmail.com
Stjórn Samfylkingarfélagsins á Akranesi.