Óskað eftir framboðum og tilnefningum í Mosfellsbæ

Samfylkingin,

Kæru flokksfélagar í Samfylkingunni í Mosfellsbæ.

Á félagsfundi sem haldinn var þann 31. janúar síðastliðinn var einróma ákveðið að viðhafa uppstillingu við skipan framboðslista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.

Kjörnefnd sem þegar hefur tekið til starfa vill hvetja flokksfólk til að hafa samband ef það hefur áhuga á að taka sæti á listanum og/eða senda inn tilnefningar eða tillögur um jafnaðarfólk sem það vill gjarnan sjá á framboðslista flokksins. Skilaboðum má koma til kjörnefndar í netfangið [email protected]

Þá er líka hægt að hafa samband beint við einstaka nefndarmenn, en nefndina skipa:

Erna Björg Baldursdóttir, 869 4116

Gerður Pálsdóttir, 699 8684

Rafn Guðlaugsson, 665 1605

Margrét Gróa Björnsdóttir, 699 7639

Ólafur Guðmundsson, 868 2566