Strandgata 43 - Hafnarfirði

Félagsfundur - tillaga til afgreiðslu að framboðslista í Hafnarfirði

Samfylkingarfélagið í Hafnarfirði boðar til félagsfundar mánudaginn 7. mars næstkomandi frá kl. 18:00. Fundurinn verður í Samfylkingarhúsinu í Hafnarfirði á Strandgötu 43.

Á fundinum verður lögð fram tillaga til afgreiðslu að framboðslista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Auk þess verður farið yfir næstu skref í komandi kosningabaráttu, sem má segja að sé nú þegar hafin. 
Félagar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn. Athugið að fyrir þau sem ekki komast á staðinn verður fundinum streymt í gegnum Zoom fjarfundarbúnað og hlekk á fundinn má finna hér fyrir neðan.

https://us02web.zoom.us/j/88642468286?pwd=UE8zdWI0dG43RGp1MVV4YkU1YnRDdz09

Baráttukveðjur,
stjórn Samfylkingarfélagsins í Hafnarfirði.