Félagsfundur í Mosfellsbæ - gestur Logi Einarsson
Stjórn Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ boðar til félagsfundar laugardaginn 5. mars kl.11-13 í Þverholti 3.
Dagskrá:
- Uppstillingarnefnd leggur fram til samþykktar framboðslista Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ við sveitarstjórnarkosningarnar í maí.
- Önnur mál
Sérstakur gestur fundarins verður Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar.
Fundarstjóri verður Þórunn Sveinbjarnardóttir þingmaður í Suðvesturkjördæmi.