Spjallkaffi 60+ í Reykjavík - Gestur Dagur B. Eggertsson
Spjallkaffi 60+ í Reykjavík verður miðvikudaginn 2. mars kl. 10.30 - 12.00. Borgarstjórinn okkar, Dagur B. Eggertsson verður gestur okkar að þessu sinni.
Kæru félagar!
Í kjölfar afléttinga covidfaraldursins ætlum við að hefja spjallkaffið okkar á miðvikudögum aftur. Nú þegar borgar- og sveitastjórnarkosningarnar eru framundan, höfum við í huga að fá okkar frábæra fólk sem ætla að vinna borgina, til okkar í spjallkaffi með vorinu.
Fyrstur verður Borgarstjórinn okkar Dagur B. Eggertsson og kemur hann til okkar nk. miðvikudag 2. mars og verður hjá okkur frá kl.11.00 til kl. 12.00.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Stjórn 60+SFFR