Strandgata 43 - Hafnarfirði

Húsnæðismál í Hafnarfirði – frambjóðendur og Kristrún Frosta

Laugardaginn 2. apríl kl. 12:00 heldur Samfylkingin í Hafnarfirði opið spjall um stöðu húsnæðismála í bænum okkar.

Frambjóðendur verða að sjálfsögðu á staðnum og Kristrún Frostadóttir þingkona okkar mun einnig mæta og fara yfir málin en hún hefur verið öflug í umræðum um húsnæðismál á Alþingi það sem af er þessu kjörtímabili.

Öll velkomin og við hlökkum til að sjá ykkur.

Kaffiveitingar verða í boði

X-S

Að sjálfsögðu!