Gamla Bíó

Kosningagleði - Áfram Reykjavík 2022!

Á sumardaginn fyrsta, 21. apríl, mun Samfylkingin í Reykjavík kynna kosningaáherslur sínar í Gamla bíói.

Húsið opnar kl. 12:30 — dagskrá hefst kl. 13:00. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá: stuttar ræður, tónlist og almennt fjör. Að lokinni dagskrá í Gamla bíói verður haldið í nýju kosningamiðstöðina á Tryggvagötu 21 (á móti Bæjarins bestu á Hafnartorgi) þar sem við ætlum að eiga saman skemmtilega stund. Fullt aðgengi er í Gamla bíói og í kosningamiðstöð.

Öll velkomin - fullorðnir og börn! Endilega takið daginn frá og sjáumst í sumarskapi 21. apríl!