Vallarhúsið á Vivaldi vellinu - Seltjarnarnes

Listi Samfylkingarinnar og óháðra á Seltjarnarnes kynntur

Aðalfundur og listakynning XS og óháðra á Seltjarnarnesi Samfylkingin á Seltjarnarnesi boðar til aðalfundar og listakynningar á framboðslista Samfylkingar og óháðra fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.

Samfylkingin á Seltjarnanresi ákvað á félagsfundi í febrúar að skipa uppstillingarnefnd og bjóða fram undir merkjum Samfylkingar og óháðra og verður listinn kynntur og borinn upp til samþykktar á fundinum. Listinn er gríðarlega öflugur með reynslumiklu fólki í bland við nýliða sem hafa sterkar tengingar, reynslu og fagþekkingu af starfi bæjarins.

Fundurinn fer fram í vallarhúsinu á Vivaldi vellinum, sunnudaginn 3. apríl
kl. 15:00, boðið verður upp á vöfflur.
Börn, vinir og fjölskylda eru hjartanlega velkomin á fundin enda verður hann að mestu í formi óformlegrar samveru og vöffluáts.

Vonumst til að sjá sem flesta Seltirninga til að hefja öflugan upptakt fyrir kosningarnar í vor.