Snæfellsnes

Skráning landsfundarfulltrúa Samfylkingarfélagsins á Snæfellsnesi

Kæri félagi, skráning er hafin á landsfundarfulltrúum!

Landsfundur Samfylkingarinnar verður haldinn dagana 28. & 29. október á Grand Hótel Reykjavík. 

Landsfundarfulltrúar hafa kosningarétt á landsfundi en til að fá þann rétt er aðildarfélögum skylt að kjósa fulltrúa úr sínum röðum. Hér fyrir neðan er eyðublað sem þið fyllið út óski þið eftir þátttöku á landsfundi. Hafi þið spurningar geti þið sent póst til Sigrún Einarsdóttur á skrifstofu flokksins, [email protected] eða á formann félagsins, Garðar Svansson, [email protected]

Félagsfólki gefst kostur á að yfirfara drög að stefnu flokksins og gefa henni umsögn, breyta og bæta. Drögin er að finna hér. Tillögur geti þið sent á [email protected] fyrir 29. sept. 

Félagsfólk er hvatt til að mæta og taka þátt!  

Tala fulltrúa miðast við tölu fullgildra aðalfélaga eins og hún var samkvæmt flokksskrá 31. desember næstliðins árs. Fyrir 10 félagsmenn sé kjörinn einn fulltrúi og síðan til viðbótar einn fulltrúi fyrir hverja 10 félagsmenn eða brot úr þeirri tölu sem þó sé eigi minna en einn þriðji. Kjósa skal jafn marga fulltrúa til vara. Ef fleiri eru í kjöri en fulltrúatala segir til um þá skal kosning fara fram leynilega og skriflega.

Skráningu lýkur 28. sept. kl. 23:59.