Gróska

Má segja allt? Samtal um hatursorðræðu.

Verið velkomin í samtal um hatursorðræðu við fulltrúa Samfylkingarinnar í Norræna húsinu á Fundi fólksins.

Er kominn tími á að skerpa á mörkum tjáningarfrelsisins og hatursorðræðu? Hvernig getum við brugðist við hatursorðræðu og áróðri? Hvernig geta stjórnmálin tekið á þessu?

Viðmælendur

Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar og borgarfulltrúi

Helga Vala Helgadóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar

Sigurþóra Bergsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi og framkvæmdastjóri Bergsins

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, oddviti Garðabæjarlistans og fyrrv. formaður Samtakanna 78

Fundarstjóri: Alexandra Ýr van Erven, ritari Samfylkingarinnar