Sveintunga - Garðatorgi

Samfylkingin í Garðabæ: Félagsfundur

Kæri félagi í Garðabæ, skráning er hafin á landsfundarfulltrúum!

Samfylkingin í Garðabæ býður til opinsfélagsfundar miðvikudaginn 21. september kl. 20 - 21:30, í Sveinatungu á Garðatorgi. Við ætlum að ganga frá kjöri landsfundarfulltrúa og fara yfir drög á uppfærðri stefnu. Félagsfólki gefst kostur á að yfirfara drög að stefnu flokksins og gefa henni umsögn, breyta og bæta. Drögin er að finna hér.

Ósk um setu á landsfundi fyrir hönd Samfylkingarfélagsins í Garðabæ.

Dagskrá:

  • Þórunn Sveinbjarnardóttir og Kristrún Frostadóttir fara yfir stöðuna í landsmálunum
  • Undirbúningur fyrir landsfund og val landsfundarfulltrúa -
  • Yfirferð á drögum að uppfærðri stefnu - drögin er að finna hér.
  • Önnur mál 

Landsfundur Samfylkingarinnar verður haldinn dagana 28. & 29. október á Grand Hótel Reykjavík. 

Landsfundarfulltrúar hafa kosningarétt á landsfundi en til að fá þann rétt er aðildarfélögum skylt að kjósa fulltrúa úr sínum röðum. Ef fleiri eru í kjöri en fulltrúatala segir til um þá skal kosning fara fram leynilega og skriflega.

Tala fulltrúa miðast við tölu fullgildra aðalfélaga eins og hún var samkvæmt flokksskrá 31. desember næstliðins árs. Fyrir 10 félagsmenn sé kjörinn einn fulltrúi og síðan til viðbótar einn fulltrúi fyrir hverja 10 félagsmenn. Kjósa skal jafn marga fulltrúa til vara. 

Skráning á listann er ekki ígildi þess að vera kjörinn landsfundarfulltrúi. Stjórn aðildarfélagsins fer yfir skráningar og leggur endanlegan lista af landfundafulltrúum til kosninga á félagafundi.