Strandgata 43, Hafnarfirði

Samfylkingin í Hafnarfirði: Félagsfundur

Kæri félagi í Hafnarfirði, skráning er hafin á landsfundarfulltrúum!

Samfylkingin í Hafnarfirði býður til opinsfélagsfundar mánudaginn 26. september kl. 18, Strandgötu 43. Við ætlum að ganga frá kjöri landsfundarfulltrúa og fara yfir drög á uppfærðri stefnu. Heiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður, fer yfir stefnuna með okkur. Á boðstólnum verður rjúkandi haustsúpa. Drög að uppfærðri stefnu.

Landsfundur Samfylkingarinnar verður haldinn dagana 28. & 29. október á Grand Hótel Reykjavík. 

Ósk um setu á landsfundi fyrir hönd Samfylkingarinnar í Hafnarfjörð.

Landsfundarfulltrúar hafa kosningarétt á landsfundi en til að fá þann rétt er aðildarfélögum skylt að kjósa fulltrúa úr sínum röðum. Ef fleiri eru í kjöri en fulltrúatala segir til um þá skal kosning fara fram leynilega og skriflega.

Tala fulltrúa miðast við tölu fullgildra aðalfélaga eins og hún var samkvæmt flokksskrá 31. desember næstliðins árs. Fyrir 10 félagsmenn sé kjörinn einn fulltrúi og síðan til viðbótar einn fulltrúi fyrir hverja 10 félagsmenn. Kjósa skal jafn marga fulltrúa til vara. 

Skráning á listann er ekki ígildi þess að vera kjörinn landsfundarfulltrúi. Stjórn aðildarfélagsins fer yfir skráningar og leggur endanlegan lista af landfundafulltrúum til kosninga á félagafundi.