Sunnuhlíð 12

Samfylkingin á Akureyri: Félagsfundur

Landsfundarfulltrúar hafa kosningarétt á landsfundi en til að fá þann rétt er aðildarfélögum skylt að kjósa fulltrúa úr sínum röðum. Kosningar fulltrúa og varafulltrúa á landsfund fara fram á félagsfundi mánudaginn 3. október kl. 20:00, Sunnuhlíð 12.  Við ætlum að ganga frá kjöri landsfundarfulltrúa og fara yfir drög á uppfærðri stefnu. Félagsfólki gefst kostur á að yfirfara drög að stefnu flokksins og gefa henni umsögn, breyta og bæta. Drögin er að finna hér.

Skrá mig sem landsfundarfulltrúa Samfylkingarinnar á Akureyri.

Landsfundur Samfylkingarinnar verður haldinn dagana 28. & 29. október á Grand Hótel Reykjavík. 

Ef fleiri eru í kjöri en fulltrúatala segir til um þá skal kosning fara fram leynilega og skriflega.Tala fulltrúa miðast við tölu fullgildra aðalfélaga eins og hún var samkvæmt flokksskrá 31. desember næstliðins árs. Fyrir 10 félagsmenn sé kjörinn einn fulltrúi og síðan til viðbótar einn fulltrúi fyrir hverja 10 félagsmenn eða brot úr þeirri tölu sem þó sé eigi minna en einn þriðji. Kjósa skal jafn marga fulltrúa til vara. 

Skráning á listann er ekki ígildi þess að vera kjörinn landsfundarfulltrúi. Stjórn aðildarfélagsins fer yfir skráningar og leggur endanlegan lista af landfundafulltrúum til kosninga á félagafundi þann 3. október kl. 20:00, einnig verður þá farið yfir drög að nýrri stefnu, hana er að finna hér fyrir neðan.