Opinn fundur um stöðu flóttafólks á Íslandi
Ungt Jafnaðarfólk, Samfylkingarfélagið í Reykjavík og 60+ standa fyrir opnum umræðufundi um stöðu flóttafólks á Íslandi, miðvikudagskvöldið 16. nóvember kl. 19:30 í Sóltúni 26 með Helgu Völu Helgadóttur, þingkonu Samfylkingarinnar
Guðríður Lára Þrastardóttir lögfræðingur, starfsmaður þingflokks og fyrrverandi teymisstjóri málefna umsækjenda um alþjóðlega vernd hjá Rauða krossinum heldur kynningu um málefni flóttafólks.
Léttar kaffiveitingar verða í boði.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest,
Ungt jafnaðarfólk, Samfylkingarfélagið í Reykjavík, 60+ í Reykjavík